16-manna úrslit á Íslandsmóti Símans í Netskák hófust í gær með tveimur viðureignum. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson fór nokkuð örugglega áfram gegn Degi Andra Friðgeirssyni en Símon Þórhallsson þurfti bráðabana gegn Bárði Erni Birkissyni eftir vaska endurkomu hjá Bárði.
Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson
Flestir bjuggust við að Bragi myndi vinna nokkuð auðveldan sigur gegn Degi. Fyrsta skákin hinsvegar lofaði góðu fyrir Dag. Hann tefldi nokkuð traust og gaf fá færi á sér. Bragi hafði betra tafl en staðan lokaðist á endanum of mikið og hvorugur gat reynt neitt.
Jafnteflið hefði átt að gefa Degi sjálfstraust inn í einvígið en mögulega róaðist hann full mikið því hann gerði sig sekan um stór mistök í skák númer tvö.
15…Bg6?? tapar manni eftir 16.Rxg6 og Dagur gafst upp.
Þriðja skákin var snaggarleg hjá Braga. Hann gaf peð fyrir stórhættulegan biskup og Dagur flæktist snemma í taktísku neti sem hann losnaði ekki úr.
Bragi batt svo enda á einvígið með snaggaralegri sóknarskák í Ljósleiðaraskákinni svokölluðu. Bragi beitti Grand Prix árásinni og sýndi hversu hættulegur hann getur verið með frumkvæðið. Dagur fékk aldrei andrými og einvígið búið.
Nokkuð þéttur 3,5-0,5 sigur hjá Braga sem er kominn áfram.
Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson
Hér mátti fyrirfram búast við spennandi einvígi og það varð raunin. Símon byrjaði þó betur…hann fékk kolunnið tafl gegn Bárði sem gerði stór mistök í miðtaflinu og tapaði peði. Símon hinsvegar klikkaði í úrvinnslunni og Bárður náði hálfgerðu kraftaverkajafntefli.
Ekki ósvipað og í fyrra einvíginu kom stór fingurbrjótru í skák tvö.
11…Rf6?? tapaði manni eftir 12.Da4+
Bárður fékk endalausa sénsa í þriðju skákinni en náði ekki að nýta þá, Símon náði jafntefli.
Símon virtist fara langleiðina með að tryggja sér sigur í fjórðu skákinni þegar Bárður lék af sér drottningu í lokin, enn var öfgafullt tímahrak að kosta Bárð.
Bárður komst aðeins inn í einvígið með seiglusigri í tímahraki í mikilli baráttuskák. Vonin um bráðabana var enn á lífi.
Í lokaskákinni náði Bárður í endurkomusigur eftir að hafa haft verra tafl og mun verri tíma…en einhvern veginn á seiglunni náði Bárður að snúa dæminu sér í vil.
Í fyrstu bráðabanaskákinni stóð Bárður til vinnings en enn og aftur kom tímaskortur og beit hann í bakið. Bárður náði ekki að nýta sér yfirburðina og endurtók sömu stöðu þrisvar eftir gott sprikl frá Símoni.
Símon var loks betri í næstu bráðabanaskák og kunni greinilega betur á stöðutýpuna í Philidor-vörninni.
Útsending gærkvöldsins:
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignir í 16 manna úrslitum
Drátturinn fyrir 16 manna úrslitum, sem fram fara á sunnudögum í september. Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, raðaðist á eftirfarandi hátt:
- 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson 4,5-3,5
- 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson 3,5-0,5
- 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson
- 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson
- 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson
- 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
- 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson
- 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson
Í átta manna úrslitum mætast
- Símon – Birkir-Jóhann
- Dagur R-Björn Þ – Bragi
- Róbert-Jón Kristinn – Helgi Áss-Björn Hólm
- Jóhanna-Ingvar Þór – Vignir-Aleksandr
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
- 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
- 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:
- 200.000 kr.
- 100.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.
















