Tvær umferðir fóru fram á Haustmótinu um helgina auk frestaðra skáka. Línur eru nokkuð skýrar í flestum flokkum en þó er enn ótefld mikilvæg skák í A-flokki á milli Dags Ragnarssonar og Björns Þorfinnssonar. Vinni Dagur þá skák hefur hann vinningsforskot á Vigni Vatnar Stefánsson! Stefán Steingrímur Bergsson fer með himinskautum í B-flokki hefur unnið allar skákir sínar og ungu skákmennirnir Pétur Úlfar í C-flokki og Karma í opnum flokki hafa vakið verðskuldaða athygli.
A-flokkur

Dagur Ragnarsson er í oddastöðu í A-flokki. Dagur náði í afar vel útfærðan tæknisigur gegn Adam í 6. umferðinni.
Á sama tíma hélt Björn Hólm jafntefli gegn Vigni! Vignir náði aldrei almennilegum sénsum gegn traustri taflmennsku Björns með hvítu.
Frestuð skák hjá Degi og Birni skiptir miklu í toppbaráttunni, það er morgunljóst!

B-flokkur

Stefán Steingrímur hefur teflt hressilega í b-flokknum lét engan bilbug á sér finna um helgina! Stefán afgreiddi Ingvar Wu í toppuppgjöri.
Á sunnudeginum vann Stefán svo góðan sigur gegn Sverri Sigurðssyni sem var taplaus fram að þessu.
Þessi til viðbótar vann Stefán frestaða skák á laugardeginum, alvöru þriggja daga vakt hjá Stefáni!
Stefán í oddastöðu með fullt hús og erfitt að sjá hann missa damp í þessum flokki eins og hann er að tefla!

C-flokkur

Pétur Úlfar hefur verið sterkur í þessum flokki og hann lagið Birki Hallmundarson að velli í uppgjöri ungstjarnanna í flokknum. Í sjöttu umferð vann Pétur aftur snaggarlega, nú gegn Theodór Eiríks.

Góð helgi hjá Pétri!

Haukur gæti minnkað muninn á toppnum með sigri í frestaðri skák.
Opinn flokkur

Karma Halldórsson, annar ungur strákur fer enn með himinskautum. Hann sat hjá í 5. umferð en gerði svo jafntefli gegn Örvari í 6. umferð.


Staðan í opna flokknum:

Haustmótið heldur áfram á miðvikdaginn þar sem 7. umferð fer fram.
















