Framundan er lokaumferð á Haustmóti TR. Undanfarna daga hafa farið fram tvær umferðir auk þess sem gengið var frá frestunum. 7. umferð fór fram á miðvikudagskvöld og 8. umferð í gærkvöld. Dagur Ragnarssonar stendur vel að vígi í efsta sæti A-flokks, er efstur og mætir Josef sem er í neðsta sæti í flokknum. Stefán Steingrímur Bergsson hefur haldið áfram himinskautaherferð sinni og er enn með fullt hús í B-flokki og freistar þess að klára al-slemmuna með svörtu gegn Arnari Milutin í lokaumferðinni. Kristján Örn og Haukur berjast í C-flokki en Þór Jökull hefur tryggt sér sigur í opna flokknum.
A-flokkur
Skák Dags gegn Birni Hólm í 7. umferð virtist stefna í baráttuskák, 0.0 í tölvunum en Björn gerðist þá sekur um fingurbrjót:
27…Re7?? leyfði gaffalinn á c7 og eftirleikurinn varð töluvert auðveldari fyrir Dag fyrir vikið!
Á sama tíma fórnaði Vignir nánast húsinu gegn Þorsteini. Tölvurnar verja svörtu stöðuna en að sitja undir svona árásum í lengri tíma gegn besta skákmanni Íslands er ekki auðvelt! Þorsteinn endaði á að missa þráðinn í vörninni og Vignir náði sigri.
Vignir hélt eltingaleiknum áfram í 8. umferð og vann snarpan sigur gegn Josef með svörtu.
Dagur náði að snúa þungri skák sér í vil gegn Þorsteini. Farvötnin voru farin að liggja til svarts en fingurbrjótur í lokin flýtti fyrir.
Frestuð skák hjá Degi og Birni var tefld í dag laugardag, og hafði Dagur þar betur í mikilli stöðubaráttu.

Staðan fyrir lokaumferð:

B-flokkur
Stefán Steingrímur hefur fullt hús eins og áður sagði. Lítum á sigur hans á miðvikudeginum. Stefán tefldi enn og aftur mjög hvasst með hvítu og sótti hart að kóngi svarts sem komst aldrei í skjól. Taflmennska Stefáns með hvítu mönnunum hefur verið mjög beitt í þessum flokki!
Í áttundu umferð hafði Stefán aftur hvítt. Enn og aftur var liði fórnað og teflt upp á frumkvæðið. Jóhann varðist vel og var á köflum við það að bjarga endataflinu en Stefán hafði betur á endanum.

Margar skemmtilegar skákir í þessum flokki!

Ingvar Wu og Arnar Milutin eru öruggir með topp 3 en spurning hver fær 2. sætið!
C-flokkur
Kristján Örn er efstur í flokknum ásamt Hauki Víðis. Kristján náði að halda sér í efsta sætinu með því að ná í sigur gegn nafna sínum Geirssyni með einhversskonar hrossaflugu-sprikli með gjörtapað tafl.
Haukur lagði á meðan félaga sinn Pétur Úlfar. Haukur hafði betur í franskri vörn, vann mikilvægt peð í miðtaflinu og nýtti það í endataflinu. Annað tap Péturs í röð eftir að hafa verið í forystu í flokknum.


Spennandi lokaumferð framundan, Kristján mætir Birki en Haukur glímir við Þorstein Gauta.
Opinn flokkur
Þór Jökull Guðbrandsson hefur tryggt sér sigur í opnum flokki fyrir lokaumferðina. Eina tapskák Þórs kom gegn Karma Halldórssoni, allar aðrar skákir hafa unnist. Á miðvikudaginn lagði hann Jóel Helmer með svörtu og svo Örvar Hólm með hvítu á föstudeginum.
Úrslit úr 7. og 8. umferð:

Staðan í opna flokknum:

Baráttan um næstu sæti í flokknum eru nokkuð hörð en Þór Jökull á víst sæti í C-flokki að ári!
Lokaumferðin hefst 13:00 á morgun.















