Frá upphafi skákarinnar. Mynd: Chess.com/Mike Klein.

Annarri skák heimsmeistaraeinvígis Magnúsar Carlsen (2835) og Fabiano Caruana (2832) lauk með jafntefli. Að þessu sinni hafði heimsmeistarinn hvítt. Tefld var drottningarbragð. Magnús komst lítt áleiðis og jafnaði áskorandinn fljótlega taflið. Upp kom lokum hróksendatafl og rétt eins og í gær hafði svartur þrjú peð á móti tveim. Staðan var hins vegar steindauð og sé Bandaríkjamaðurinn ekki ástæðu til að þreyja þorrann og jafntefli samið eftir 49 leiki. Fremur tilþrifalítil skák.

Carlsen var hissa eftir 10…Hd8. Mynd Chess.com/Mike Klein.

Caruana kom Carlsen á óvart í tíunda leik með 10…Hd8 sem er óalgengur leikur.

Mikilvægasta augnablik skákarinnar er sennilega eftir 23 leiki. Þá fann Magnús langbesta leikinn í verri stöðu.

24. Dd6! Hróksendataflið er ávallt jafntefli þótt að d-peðið falli.

Sam Shankland fer yfir skákina á Chess.com.

Ingvar Þór Jóhannesson fer yfir skákina á Youtube.

Frídagur er á morgun, sunnudag. Þriðja skák einvígisins verður tefld á mánudaginn.

Hvar er best að fylgjast með einvíginu:

- Auglýsing -