Fjórða umferð EM taflfélaga hefst kl. 12:15.

Það gekk á ýmsu í gær. Taflfélag Reykjavíkur og Dímon gerðu jafntefli en aðrar viðureignir töpuðust eins og ritstjóri rekur í frétt í gær.

Engin íslensk sveit verður í beinni í dag en rétt er að benda á spennandi toppviðureignir.

Viðureignir dagsins

Alls eru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum eru það:

  • Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
  • Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
  • Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
  • Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
  • Dímon (nr. 99)
  • Auk þess teflir Óskar Bjarnason fyrir klúbb frá Lúxemborg.

Í kvennaflokki er kvennalið sem teflir undir nafni Íslands

  • Ísland (15)

Alls tefla 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir eru fjölmennari en Ísland sem er býsna magnað en það eru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.

- Auglýsing -