Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, útvarpsmaður, formaður Skákfélags Íslands og virkasti skákmaður landsins hefur lengi stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Gaman að þessu.

Í gær mætti Björn Ívar Karlsson, skólastjóri, FIDE-meistari og fyrsta borðs maður Skákfélags Akureyar, og Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistari, formaður meistararáðsflokkráðs Breiðabliks og fyrrverandi varaforseti SÍ í Skipholtið. Gauti Páll Jónsson, ritstjóri Tímaritsins Skák og fyrrverrandi formaður TR talaði frá Ródos.

Í kynningu um þáttinn segir:

Gestir í skákþættinum eru FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og Halldór Grétar Einarsson, formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða Evrópumót taflfélaga sem nú stendur yfir í Ródos í Grikklandi en tugir Íslendinga taka þátt í mótinu. Björn Ívar segir frá skáklífinu í Skákskóla Íslands, Halldór Grétar ræðir tölfræði og ber saman meðalaldur og meðalskákstig keppenda á EM taflfélaga, á Reykjavíkurskákmótinu síðasta og í úrvalsdeild síðasta Íslandsmóts skákfélaga. Í upphafi þáttar er viðtal við Gauta Pál Jónsson, ritstjóra tímaritsins Skákar, sem Kristján Örn tók við hann í morgun en Gauti Páll er einn af 38 Íslendingum sem nú sitja að tafli á EM taflfélaga í Grikklandi.  Farið var yfir fréttir um skyndilegt andlát bandaríska stórmeistarans Daniel Naroditsky sem lést síðastliðinn sunnudag en hann var aðeins 29 ára gamall. Hann var á meðal sterkustu skákmanna heims í hraðskák og atskák, vinsæll skákskýrandi og streymari, dáður og vinamargur í skáksamfélaginu út um allan heim.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -