Jafntefli varð í áttundu skák heimsmeistaraeinvígis Fabiano Caruana (2832) og Magnúsar Carlsen (2835) í spennandi skák þar sem Bandaríkjamaðurinn hafði góða vinningsmöguleika um tíma. Hann fann ekki bestu leiðina og Magnús náði að jafna taflið. Staðan er 4-4 að loknum átta skákum.
Magnús tefldi Sikileyjarvörn eins og ávallt hingað til þegar hann hefur svart. Fabi breytti núna útaf þegar lék 3. d4 og fór í opnu Sikileyjarvörnina. Carlsen tefldi Svesnikov-afbrigðið eins og flestir spekingar höfðu búist við eftir fyrstu skákina þar sem Carlsen lék 2…Rc6. Áskorandinn kom honum á óvart með Rd5 sem er algeng lína en ekki aðalleiðin. Það sem kom mest á óvart var þó líklegast leiðin með 9.a4 þar sem 9.c4 er langalgengast.
12. Bd2! Þesi leikur hefur aðeins sést fjórum sinnum áður. Carlsen hugsaði sig lengi um kjölfarið og fékk miklu verri tíma. Eftir átjánda leik kom þessi staða upp.
18…g5?! Magnús leggur of mikið á stöðuna og kemst í kjölfarið í erfiða stöðu. Magnús vildi þó meina eftir skákina að hann hefði ekki séð neitt annað í stöðunni en að láta reyna á þessar flækjur. 19. c4 f4 20. Bc3 Bf5
Will he go 21.c5? Journalists and thousands of chess fans only have this on their mind right now. @MagnusCarlsen probably too. #CarlsenCaruana pic.twitter.com/mKo45aNMzb
— ChesscomNews (@ChesscomNews) November 19, 2018
https://platform.twitter.com/widgets.js
21. c5! Þessi peðsfórn tryggir hvítum nánast hjartnær unnið tafl samkvæmt ofurtölvunni Sesse. Magnús svaraði um hæl 21…Rxf3+ 22. Dxf3 dxc5 23. Had1 Bd6 24. h3? Eftir nánast óaðfinnanlega taflmennsku fipast Fabi. 24. Dh5 hefði tryggt stöðuyfirburði hans. Magnús lék 24…De8 og náði vopnum sínum til baka. Jafntefli samið eftir 38 leiki.
Rex Sinquefield’s primal scream after 24.h3? pic.twitter.com/BCNpOrsGP0
— Olimpiu G. Urcan (@olimpiuurcan) November 19, 2018
Emotions after game 8…
Disappointment for @FabianoCaruana.
Relief for @MagnusCarlsen #CarlsenCaruana pic.twitter.com/9atmQV5UIe— US Chess (@USChess) November 19, 2018
https://platform.twitter.com/widgets.jsÚtsending á vefsíðu mótsins er afar góð. Í dag var Nigel Short í heimsókn og fór á kostum.
Nigel Short: „I had my room checked for electronic devices. I’ve only done that twice in my life. Once when I was playing Garry Kasparov and, more recently, when I was running for FIDE president.“
— Olimpiu G. Urcan (@olimpiuurcan) November 19, 2018
https://platform.twitter.com/widgets.js
Grein Chess.com með skýringum Sam Shankland um skákina verður að finna hér.
Ingvar Þór Jóhannesson fer yfir skákina á Youtube.
Frídagur er á morgun. Níunda skákin fer fram á miðvikudaginn.
Hvar er best að fylgjast með einvíginu:
- NRK – Sýn býður upp á tilboð fyrir skákmenn – sjá borða efst á Skák.is.
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins (kostar $20 en hægt að sjá skákmennina sjálfa)
- Beinar útsendingar á Chess24
- Chess.com
- Chessbrah
- Ofurtölvu-skýringar
















