Ólafur S. Ásgrímsson varð áttræður 10. desember sl. Í tilefni afmælis hans hélt Skáksamband Íslands honum smá hóf í gær þar sem Óli, eins og hann er yfirleitt kallaður, var afhentur blómvöndur og smá glaðningur fyrir sig og sína ómetanlegu eiginkonu, Birnu Halldórsdóttur. Óli fékk bæði gjafir frá SÍ og Taflfélagi Reykjavíkur en hann er heiðursfélagi beggja félaga.

Óli hóf að starfa fyrir skákhreyfinguna 1975 og fagnar því 50 ára „starfsafmæli“ í ár. Óli er enn einn okkar virkasti dómari og var meðal dómara á síðasta Íslandsmóti skákfélaga og hefur þegar þegið boð um að vera einn dómara á Reykjavíkurskákmótinu 2026.

Ólafur er þekktur fyrir nákvæmni sína og fagmennsku í dómgæslu – hann sér til þess að allt gangi rétt fyrir sig í skáksalnum, hvort sem það er að passa upp á hljóð í salnum eða lausn ágreiningsmála. Óli er ekki bara frábær skákstjóri heldur er einnig fínn skákmaður og tók þátt á Íslandsmótinu í skák á Blönduósi í sumar.

Óli fer frábær fyrirmynd um hvernig ástríða fyrir skák getur blómstrað í ýmsum hlutverkum – ekki bara við skákborðið!

Til hamingju með áttræðisafmælið, Ólafur – íslensk skákhreyfing á þér miklar þakkir skilið fyrir óeigingjarnt starf þitt!

 

- Auglýsing -