Skáksamband Norðurlanda, sem samanstendur af skáksamböndum Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Grænlands, hefur sent bréf til allra aðildarskáksambanda FIDE og fulltrúa þeirra þar sem þau hvetja Alþjóðaskáksambandið (FIDE) til að hafna tillögu um að aflétta refsiaðgerðum gegn skáksamböndum Rússlands og Hvíta-Rússlands.
Á dagskrá aðalfundar FIDE sunnudaginn 14. desember er liður 3.1 um takmarkanir á þátttöku Rússlands og Hvíta-Rússlands. Rússneska skáksambandið hefur lagt fram tillögu um að tryggja fulla þátttöku landsliða og heimila notkun þjóðtákna aftur, en Norðurlönd telja að þetta stríði gegn leiðbeiningum Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC). Stjórn FIDE (Counsil) upplýsti í gær í að hún legði til að Rússland og Belarús geti teflt framvegis sem lið án þess að tefla undir sínum þjóðfána. Sjá hér.
Í bréfinu segir að engar breytingar hafi orðið á aðstæðum síðan innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022, sem leiddu til refsiaðgerða FIDE í samræmi við IOC. Nýlegar ákvarðanir IOC frá 11. desember 2025 staðfesta að takmarkanir eigi að halda áfram í fullorðinsflokki, þó að undantekningar séu gerðar fyrir unglinga. Einungis er heimilt að keppa sem hlutlausir íþróttamenn (Individual Neutral Athletes) undir ströngum skilyrðum, án þjóðtákna og án stuðnings við stríðið.
Norðurlönd benda á að aflétting refsiaðgerða gæti stofnað stöðu FIDE innan Ólympíuhreyfingarinnar í hættu og hvetja alla fulltrúa til að greiða atkvæði gegn tillögunni. Þau lýsa yfir von um að FIDE haldi fast við leiðbeiningar IOC til að varðveita heiðarleika íþróttarinnar.
Sjá nánar á heimasíðu Norska skáksambandsins.















