Þriðja tímabilið af Heimsdeildinni (Global Chess League), hófst í gær í Óperuhúsinu í Mumbai á Indlandi. Mótið, sem stendur yfir frá 14. til 23. desember, samanstendur af flestum sterkustu skákmönnum heims og býður upp á nýtt og spennandi fyrirkomulag.
Óvenjulegt fyrirkomulag
Heimsdeildin aðgreinir sig frá öðrum liðamótum með sérstöku fyrirkomulagi sem blandar saman körlum, konum og ungmennum. Hvert lið hefur sex liðsmenn: Fyrsta borðið er ætlað „goðsögninni“. Borð tvö og þrjú eru fyrir karlmenn, borð fjögur og fimm fyrir konur, og sjötta borðið er ætlað ungmennum fæddum 2003 eða síðar.
Meðal keppenda eru Gukesh, Anand, Pragga, Nakamura, Caruana, Giri og Hou Yifan.
Tímamörkin eru 20 mínútur á hverja skák með 2 sekúnda viðbótartíma frá 41. leik.. Stigakerfið er sérstakt: Sigur gefur liðinu 3 stig, jafntefli 1 stig og tap 0 stig.
Aðeins ein viðureign fer fram í einu. Flesta daga hefst taflmennskan kl. 11:30 með fyrstu viðureign dagsins. Aðrar viðureignir hefjast kl. 13:00 og 14:30.
Einnig er stigakerfið fyrir hverja skák óvenjulegt. Sigur með svörtu gefur 4 stig, sigur með hvítu gefur 3 stig og jafntefli 1 stig. Í hverri viðureign hefur sama liðið hvítt á öllum borðum og þarf því hvíta liðið ávallt fleiri vinninga til að tapa ekki – nema að öllum skákunum ljúki með jafntefli.
Eitt af áhugaverðustu þáttum fyrirkomulagsins er að skákirnar byrja ekki allar samtímis. Tvær skákir hefjast fyrst (kvennaborðin). Síðan byrja næstu tvær eftir tveggja mínútna bið (2. og 3. borð), og að lokum síðustu tvær skákirnar (1. borð og ungmennaborð) eftir aðrar tvær mínútur. Þetta fyrirkomulag skapar aukna dramatík þar sem skákunum líkur frekar á mismunandi tíma en þegar allir skákirnar hefjast á sama tíma. Spurning um að taka þetta upp í næstu atskákkeppni taflfélaga?
Tefld er tvöföld umferð og tefla tvö efstu liðin til úrslita á Þorláksmessu.
Úrslit gærdagins
Í fyrstu viðureigninni sigruðu Triveni Continental Kings 9–7 gegn Alpine SG Pipers. Alireza Firouzja (2754) sigraði Fabiano Caruana (2751) á fyrsta borði, en Wei Yi (2751) lagði Anish Giri (2685) á öðru. Jafntefli urðu á þriðja, fjórða og sjötta borði, en Alexandra Kosteniuk tapaði fyrir Nino Batsiashvili, sem teflir á næsta Reykjavíkurskákmóti, á fimmta borði.
Heimamennirnir upGrad Mumba Masters unn stórsigur Ganges Grandmasters 17–4 þar sem Vishy Anand og félagar máttu lúta illa í dúk.
Að lokum sigruðu Fyers American Gambits 8–5 gegn PBG Alaskan Knights í harðri baráttu þar sem aðeins einni skák lauk ekki með jafntefli. Serbneska skákkonan Teodora Injac, sem er einnig meðal keppenda á Reykjavíkurskákmótinu 2026, tryggði sigurinn.

Mótið fer fram í Konungalega óperuhúsinu, en áhorfendur um allan heim geta fylgst með beinum útsendingum. Taflmennska dagsins hefst kl. 11:30 í dag.
















