Skákþing Akureyrar, hið 89. í röðinni hófst í dag, 11.janúar. Alls er 21 þátttakandi skráður til leiks og mun vera alllangt síðan svo margir taka þátt í skákþinginu.
Í dag voru tefldar átta skákir, en þeir færeyjafarar Jón Kristinn og Símon tefla sínar skákir síðar í vikunni. Öll úrslit voru eftir bókinni góðu, en það stóð gleggst í skákum Nökkva og Smára og Sigurðar og Sigþórs þar sem yngri mennirnir fengu báðir góða stöðu og létu ekki í lægra haldi fyrr en eftir harða baráttu og yfirsjónir á örlagastundu.

Úrslitin í dag (ásamt frestuðu skákunum):

o. No. White Rtg Pts. Result Pts. Black Rtg No.
1 1 FM Thorgeirsson, Jon Kristinn 2270 0 0 Isleifsson, Runar 1842 6
2 11 Stefansson, Benedikt 1759 0 0 FM Thorhallsson, Simon 2192 2
3 4 Oskarsson, Markus Orri 1983 0 1 – 0 0 Kramarenko, Viacheslav 1561 14
4 15 Valsson, Nokkvi Mar 1561 0 0 – 1 0 Olafsson, Smari 1874 5
5 7 Eiriksson, Sigurdur 1779 0 1 – 0 0 Sigurgeirsson, Sigthor Arni 1546 16
6 17 Asgrimsson, Valur Darri 1488 0 0 – 1 0 Steingrimsson, Karl Egill 1768 8
7 9 Eymundsson, Eymundur 1764 0 1 – 0 0 Bernhardsson, Kristian Mar 0 18
8 19 Lanckman, Galaad 0 0 0 – 1 0 Matharel, Tobias 1759 10
9 12 Thoroddsen, Baldur 1597 0 1 – 0 0 Warneke, Rurik Kjartan 0 20
10 21 Wielgus, Dominik W 0 0 0 – 1 0 Karlsdottir, Harpa Hrafney 1562 13
11 3 IM Karason, Askell O 2103 0 ½ not paired

Önnur umferð fer svo fram eftir viku, sunnudaginn 18. janúar.

 

- Auglýsing -