Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, útvarpsmaður, fyrrverandi varaforseti Skákfélags Grandrokks, formaður Skákfélags Íslands og virkasti skákmaður landsins hefur lengi stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Gaman að þessu.
Í fyrradag mætti Akureyringurin Ólafur Kristjánsson í Skipholtið og spjallaði við Kristján Örn
Í kynningu um þáttinn segir:
Kristján Örn ræðir við Ólaf Kristjánsson, 82 ára fyrrverandi togarasjómann frá Akureyri en hann er öflugur skákmaður. Ólafur kallar sig „Þorparann“ því hann fæddist í Glerárþorpi en Akureyri er skipt upp í tvo hluta, þ.e. norðan og sunnan Glerár. Í þættinum segir Ólafur frá samferðamönnum sínum, sterkum skákmönnum á Norðurlandi. Hann talar um upphaf taflmennsku sinnar, skákmót á Akureyri, Íslandsmót skákfélaga, veru sína á sjó og margt fleira.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
















