Eftirfarandi tilkynning birtist á vef stjórnarráðsins í morgun.

Sjá: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/02/06/Uthlutun-ur-afrekssjodi-i-skak-2026/

Úthlutun úr afrekssjóði í skák fyrir árið 2026 liggur nú fyrir. Alls hljóta 13 skákmenn styrki á árinu 2026.

Auglýst var eftir umsóknum í haust. Alls bárust 15 umsóknir, þar af 5 í flokkinn efnilegir skákmenn og 10 í flokkinn afreksskákmenn.

Við mat á umsóknum í flokkinn efnilegir skákmenn var tekið tillit til aldursskilyrða, árangurs og virkni árið 2025 og áætlana um virkni í skák sem umsækjandi lagði fram fyrir árið 2026.

Við mat á umsóknum í flokkinn afreksskákmenn var litið til stöðu á heimslista, virkni síðastliðið ár með tilliti til fjölda tefldra kappskáka, og áætlana um virkni á árinu 2026.

Mánaðarlegir styrkir til afreksskákmanna á árinu 2026 eru 550.000 kr. en 250.000 kr. hjá efnilegum skákmönnum. Um verktakagreiðslur er að ræða.

Eftirfarandi skákmenn hlutu styrk úr afrekssjóði. Úthlutunin nær yfir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2026, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson fékk úthlutað úr sjóðnum til þriggja ára.

Tólf mánuðir

  • Guðmundur Kjartansson
  • Hannes Hlífar Stefánsson
  • Lenka Ptácníková
  • Vignir Vatnar Stefánsson

Níu mánuðir

  • Héðinn Steinn Steingrímsson

Þrír mánuðir

  • Aleksandr Domalchuk Jónasson
  • Benedikt Briem*
  • Dagur Ragnarsson
  • Hilmir Freyr Heimisson

Tveir mánuðir

  • Adam Omarsson*
  • Henrik Danielsen
  • Iðunn Helgadóttir*

Einn mánuður

  • Guðrún Fanney Briem*

* Skákmenn sem fá styrk sem efnilegir skákmenn.

Úthlutunin byggir á lögum um skák og reglugerð um afrekssjóð í skák.

 

- Auglýsing -