Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson kláraði Skákþing Reykjavíkur með stæl og kom í mark með 8,5 vinning úr 9 umferðum. Hann hafði þegar tryggt sér titilinn skákmeistari Reykjavíkur fyrir umferðina. Dagur lagði kandídatameistararann Guðmundur Halldórsson að velli í lokaumferðinni og innsiglaði þar með öruggan og glæsilegan sigur. Jafnir í 2-4. sæti urðu Jóhann Ingvason, Halldór Grétar Einarsson og Bárður Örn Birkisson.
Á efsta hafði Dagur svart gegn Guðmundi. Eftir nokkurra stöðubaráttu í mótteknu drottningarbragði tók Dagur undirtökin í miðtaflinu og nýtti sér betri kóngsstöðu sína til að knésetja hvítan.
Halldór lagði Jóhann Ragnarsson að velli á öðru borði. Jóhann fékk þrjá menn fyrir drottningu sína en mennirnir stóðu illa og drottningin var sterkust.
Í baráttu um sæti á verðlaunapalli glutraði Benedikt Briem niður gjörunnu tafl gegn Jóhanni Ingvarssyni og tryggði þeim síðarnefnda skiptu 2. sæti.
Síðasta toppsætið kom í hlut Bárðar sem lagði Arnar Milutin að velli, þrefaldaði á g-línunni Ivan Sokolov style!

Dagur með 8,5 vinning og sigur hans öruggur. Sterkir skákmenn jafnir í 2-4. sæti.
Næstkomandi sunnudag fer fram Hraðskákmót Reykjavíkur þar sem verðlaun fyrir mótið verða afhend.
MYNDIR
Almennt um mótið
Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.
Dagskrá:
- umferð miðvikudag 7. jan 18:30
- umferð sunnudag 11. jan 13:00
- umferð miðvikudag 14. jan 18:30
- umferð sunnudag 18. jan 13:00
- umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
- umferð sunnudag 25. jan 13:00
- umferð miðvikudag 28. jan 18:30
- umferð sunnudag 1. feb 13:00
- umferð miðvikudag 4. feb 18:30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Tímamörk:
90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.
Skákstjórn:
Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad
Aðalverðlaun
- 1. sæti kr. 110.000
- 2. sæti kr. 55.000
- 3. sæti kr. 35.000
Aukaverðlaun
Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:
Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.
Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.
Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.
Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.
Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.
Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.
Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.
Oddastig (tiebreaks):
1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger
Þátttökugjöld:
kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.
Frítt fyrir Stórmeistara
Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.
Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.
Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

















