Önnur umferð landsliðsflokks Íslandsmóts kvenna hefst í dag kl. 13. Ein af mögulegum úrslitaskákum mótsins fer fram þegar Lenka og Jóhanna Björg mætast.
Í annarri umferð mætast:
- WCM Jóhanna Björg (1) – WGM Lenka (1)
- WCM Iðunn (0) – WCM Guðrún Fanney (1)
- Emilía Embla (0) – Tinna Kristín (0)
Mótið fer fram í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts, Strandgötu 88 í Hafnarfirði. Mótið fer fram 6.-10. febrúar 2026 og teflt verður við frábærar aðstæður. Teflt er í landsliðsflokki og áskorendaflokki.
Almennt um mótið
LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA
Umferðartafla landsliðsflokks
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13
- Mánudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
- Þriðjudagurinn, 10. febrúar, kl. 16
Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki
Verðlaun í landsliðsflokki
- 150.000 kr.
- 90.000 kr.
- 60.000 kr.
Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2027 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Úsbekistan í september 2026.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunasætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnar verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Áskorendaflokkur kvenna
Fer fram helgina 6.-8. febrúar og teflt verður eftir bikarsyrpufyrirkomulagi. Tímamörk eru 30+30.
- Föstudagurinn, 6. febrúar, kl. 18:00
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 10:30
- Laugardagurinn, 7. febrúar, kl. 13:00
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 10:30
- Sunnudagurinn, 8. febrúar, kl. 13:00
Auk verðlaunagripa verða úttekir á Chessable í verðlaun.
Áskorendaflokkur á Chess-Results















