Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í fyrradag mætir alþjóðlegi meistarinn og einn af driffjöðrum Skákfélags Akukreyrar til leiks, sjálfur Áskell Örn Kárason!

Í kynningu um þáttinn segir:

Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Áskell er alþjóðlegur meistari í skák og núverandi Íslandsmeistari öldunga. Þeir ræða skákstarfið fyrir norðan, mikinn vöxt í öldungaskákinni á landinu öllu undanfarin ár, forsetatíð Áskels hjá Skáksambandi Íslands um síðustu aldamót, Heimsmótið í Salnum í Kópavogi árið 2000 þar sem þáverandi heimsmeistari Garry  Kasparov og Viswanathan Anand sem síðar varð heimsmeistari voru á meðal keppenda og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -