Í dag hófst í Kópavogi alþjóðlega mótið „Kópavogur International Chess Tournament 2026„(einnig nefnt Alþjóðlega Kópavogsmótið – Ungir Meistarar) en um er að ræða  alþjóðlegt skákmót sem Skákdeild Breiðabliks skipuleggur. Mótið er ætlað efnilegum ungum skákmönnum á aldrinum 16–30 ára og miðar að því að skapa sterkt umhverfi fyrir IM- og GM-áfanga.

Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.

Í gær var dregið um töfluröð á mótinu og má segja að hattur Helga Ólafssonar sem notaður var við dráttinn hafi verið happahattur þar sem eingöngu íslenskir skákmenn fengu hvíta litinn í fyrstu umferð en það þýðir jafnframt fleiri hvíta á mótinu (5 í 9 skákum).

Vindum okkur í skákirnar úr fyrstu umferð en þær hófust eftir að bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir hafði leikið fyrsta leiknum fyrir Aleksandr Domalchuk-Jonasson.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson – Mikhaylo Oleksienko

Samherjarnir úr Taflfélagi Reykjavíkur mættust í 1. umferð

Um síðustu helgi voru þeir Aleksandr og Mikhaylo liðsfélagar á Íslandsmóti Skákfélaga en nú mættust þeir sem andstæðingar. Mikhaylo hafði svart og beitti afbrigði sem kennt er við Bluebaum (sem teflir á kandídatamótinu) og er aðferð til að mæta Catalan-byrjun.

Oleksienko beitti nokkuð nýmóðins afbrigði gegn Sasha

Svartur freistar þess að ná …e5 framrásinni snemma og einfalda taflið. Úkraínumanninum tókst það og við fórum í drottningarlaust miðtafl þar sem svartur hafði biskupaparið en peðastaða hans eilítið löskuð á kóngsvæng á móti.

Aleksandr einfaldaði taflið enn frekar í framhaldinu og upp kom endatafl með mislita biskupa og jafntefli samið.

Birkir Ísak JóhannssonJaime Santos Latasa

Birkir Ísak hefur sýnt undanfarin ár að hann er einn helsti byrjanasérfræðingur landsins. Frasar eins og „Birkir-Ísak-prepp“ og mikill þáttur Birkis í mótasigrum Vignis Vatnar talar sínu máli. Í dag sýndi hann það gegn Jaime, Birkir fór ekki undir byrjunartímann sinn fyrr en í 18. leik gegn stigahæsta manni mótsins, Jaime Santos Latasa.

Hér hugsaði Birkir í raun í fyrsta skipti upp á eigin spýtur í skákinni. Hann lék hér 18.Db1 og staðan á að vera nokkuð jöfn. Kaup urðu á drottningum og jafnvægið hélst meira og minna fram að 30. leik

Hér komu mistök hjá Birki. Hann hafði aðeins verri tíma, um korter gegn þremur korterum Spánverjans. Hér hefði hvítur þurft að sjá að hann þarf að leika 31.Kf1! (eini leikurinn) og eftir 31…Rc3 að leika þá 32.Bh5, svipað og í skákinni nema svarti biskupinn fær ekki sama frelsi. Í skákinni kom 31.Bh5? Bxf2+ 32.Kg2 Bb6 33.Kh3 Bc7 og valdar mátið (Hb8-h8 var hótunin) og er nokkuð góðu peði yfir. Þetta gerði útslagið í skákinni sem lauk stuttu síðar.

Bárður Örn Birkisson Paulius Pultinevicius

Litháinn sterki Paulius Pultinevicius stimplaði sig inn með sigri gegn Bárði. Paulius hafði svart og tefldi kröftuglega gegn drottningarbragðinu hjá Bárði. Í 20. leik kom ónákvæmur leikur hjá Bárði sem gaf svörtum tækifæri á ör-taktík sem vann peð.

20.bxc6? var ekki góður eftir 20…Hxc6 er vesen á c-línunni og eftir 21.Db3 kom 21…Bxh2+! og svo kemur Dc7 með skák og vinnur manninn til baka. Paulius hér peði yfir og restin í raun bara spurning með raðtækni. Um leið og kóngur svarts komst inn fyrir varnir hvíts voru úrslitsin endanlega ráðin.

Hilmir Freyr HeimissonVignir Vatnar Stefánsson

Hilmir og Vignir þekkjast ansi vel, hafa ferðast á mörg mót saman og verið herbergisfélagar á Ólympíuskákmóti. Það er alltaf erfitt að tefla þegar andstæðingurinn þekki þig svona vel. Upp kom sikileyjarvörn, svokallað Moskvu-afbrigði.

Vignir tók nokkra áhættu í miðtaflinu í þessari stöðu:

19…Rxe5?! bauð eilítið upp í dans og Hilmir getur verið hættulegur þegar hann fær sterkt frumkvæði. 20.Rfd5! var góður leikur og hvítur kominn með betra tafl og hættuleg færi. Í 27. leik var staða Vignis komin við þolmörk

27.Hf6! feykisterkur og erfitt að verja svörtu stöðuna! Neyddist Vignir til að gefa drottninguna skömmu síðar.

Hilmir er hættulegur með frumkvæðið, Hrókur til f6 var skemmtilegur leikur!

30…Dxe7 er eini leikurinn, aðrir leikir enda með máti. Erfið vörn framundan hjá Vigni, venjulega eru tveir hrókar nóg fyrir drottningu en hvítur fékk gríðarlega hættuleg samstæð frípeð á miðborðinu og úrvinnslan klikkaði ekki hjá Hilmi.

Dagur RagnarssonValery Kazakouski

Kazakouski brattur fyrir skák.

Hér mættust liðsfélagar úr Fjölni og stýrði Dagur hvítu mönnunum. Upp kom Leníngrad afbrigðið í hollenskri vörn. Dagur gaf snemma biskupaparið en treysti á betra rými sem peð hans gáfu honum á miðborðinu.

Hvítur hefur hér fína stöðu og tölvurnar telja stöðuna betri á hvítt. Nokkuð þóf var í næstu leikjum en mögulega lá Degi of mikið á að skipta upp. Endataflið vissulega líklega jafnt en svartur náði aðeins að herða tökin í endataflinu og setja pressu á stöðu Dags. Eftir hrókakaup virtist endataflið unnið á svart, segja má að Dagur hafi „redúserað primitíft“ í gegnum skákina sem kostaði tap.

Dag vantaði slagkraft því staðan var fín og endataflið líklegast „holdebar“

Úrslit umferðarinnar:

Staðan:

Næsta umferð:

Mótið heldur áfram á morgun í Kópavoginum en skákirnar hefjast 15:00. Paulius og Hilmir er eina skákin þar sem efstu menn mætast.

Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár.

Forsvarsmenn mótsins ásamt Jóhönnu forseta og Ásdísi bæjarstjóra Kópavogs.

Kópavogur International 2026

Svipmyndir frá Opnunarhátíðinni og 1.umferð

Almennar upplýsingar um mótið:

Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.

Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)

  • Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferð
  • Miðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferð
  • Fimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferð
  • Föstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð
  • Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
  • Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
  • Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
  • Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
  • Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn

Keppendur

Frekari upplýsingar: https://www.kopavogurinternational.is/ https://www.kopavogurinternational.is/schedule https://www.kopavogurinternational.is/blog/categories/players

- Auglýsing -