Fimm eru efst með 2.5 vinning að þremur umferðum loknum á Skákmóti öðlinga 2026. Teflt er einu sinni í viku á miðvikudagskvöldum, með hléi samhliða Reykjavíkurskákmótinu. Það er afar jafnt á toppnum, þéttur pakki eins og íþróttafréttamenn segja. Það er líklega auðveldara að draga ályktun um hvar Íslandsmót skákfélaga verður haldið næsta tímabil, en hver verður öðlingameistari TR árið 2026.

Efst eru Haraldur Haraldsson, Brynjar Bjarkason, Lenka Ptácníková, Þorvarður Fannar Ólafsson og Sigurjón Harladsson. Á morgun teflir Lenka við Brynjar, Sigurjón við Harald, og annar Haraldur, hvers Baldurs er son, teflir við Þorvarð.

21 skákmaður er skráður til leiks sem er heldur dræm þátttaka en þegar það er fámennt er oft góðmennt. Þótt mótið sé fyrir 40 ára og eldri eru flestir keppendur á sínum yngri árum í þessum fjölmenna aldurhópi en hérlendis eru virkir skákmenn allt upp að tíræðisaldri. Eldri öðlingar eru fáir með, kannski skýrist það með takmörkuðum kappskákáhuga. Engin mót eru meitluð í stein, kannski má athuga breytingar á mótinu fyrst keppendum fækkar? Teflt tvisvar í viku í stað einu sinni? Löng atskák í stað kappskákar? (t.d 45+15). Það er allt hægt!

Fjórða umferð verður klukkan 18:30 í TR annað kvöld. Síðasta umferð var tefld í sal Skákskólans vegna upphitunarkvölds TR fyrir Íslandsmót skákfélaga, og tók Björn Ívar Karlsson þessar myndir. Honum er einnig þakkað fyrir að hleypa öðlingunum í Skákskólann meðan TR-ingar undirbjuggu að falla helst ekki úr úrvalsdeild – sem tókst.

Staðan eftir þrjár umferðir

Mótið á chess-results.

- Auglýsing -