Skotgrafarhernaður Bárðs virkaði í dag

Önnur umferð var tefld í Stúkunni í dag á alþjóðlega mótinu „Kópavogur International Chess Tournament 2026„(einnig nefnt Alþjóðlega Kópavogsmótið – Ungir Meistarar). Íslensku titilveiðararnir héldu áfram baráttunni á reitunum sextíu-og-fjórum. Dagurinn heilt yfir ekki góður, Bárður Örn Birkisson og Vignir Vatnar Stefánsson náðu í sigra en aðrir íslenskir keppendur lutu í dúk.

Rennum yfir gang mála í umferð dagsins:

Jaime Santos Latasa – Dagur Ragnarsson

Enski leikurinn var á boðstólnum í þessari skák og valdi Dagur afbrigði sem stórmeistarainn Colovic hefur mælt með á YouTube. Gott ef Dagur skrifaði ekki um þennan varíant í tímaritinu skák líka. Þrátt fyrir það virtist byrjunin snemma fara útaf sporinu hjá svörtum.

Spánverjinn fékk mjög þægilegt tafl þrátt fyrir að finna kannski ekki bestu leiðina til að refsa byrjanataflmennsku svarts.

Hér kom skemmtilegt trikk hjá Jaime er hann nýtti sér leppunina á c-línunni og lék 23.Bb4! Db5 (23…Db6 Bxc5! +-) 24.a4! þetta nægði til skiptamuns vinnings. Tækni Spánverjans var mjög eftir það að undanskildum einum til tveimur augnablikum og öruggur sigur hjá hvítum.

Vignir Vatnar Stefánsson – Birkir Ísak Jóhannsson

Aftur erfitt verkefni hjá Vigni sem mætir hér aðstoðarmanni sínum síðustu ár. Birkir þekkir nánast byrjanir Vignis betur en hann sjálfur. Ritstjórn hafði tippað á 1.Rf3 hjá Vigni og tefla taflið en Vignir valdi að fara í hið svokalla Glek afbrigði sem kemur upp úr fjögurra riddara tafli. Ef til vill leynivopn en er það allavega ekki lengur eftir þessa skák!

Vignir fékk lítið úr byrjuninni en þó tók hann að byggja upp ágætis tímaforskot í miðtaflinu og Birkir fór eilítið útaf sporinu í miðtaflinu eftir að hafa lítið af vandamálum framan af skák. Endaði þetta með því að Vignir átti allt að því séns á vinningsleik.

28.Hxf7! er allt að því unnið tafl á hvítt en Vignir sá einhverja drauga og sá fyrir sér að svartur gæti sett upp vörn sem tæki tíma að brjóta niður, það var rangt mat. 28.Hf5? leiddi í raun til þess að Vignir þurfti að „vinna skákina aftur“ og kom það ekki fyrr en eftir afleik Birkis síðar í skákinni, 36…Re5? en í kjölfarið varð c-peð Vignis of sterkt og hann vann sinn fyrsta sigur á þessu móti.

Þrátt fyrir góða stöðu eftir byrjunina náði Birkir ekki að standa í hárinu á Vigni

Aleksandr Domalchuk-Jonasson – Bárður Örn Birkisson

Hér var á ferðinni löng og ströng baráttu skák hjá tveimur skákmönnum sem eiga það til að setja þungann á skákinni í stöðubaráttu og lenda báðir í tímahraki! Bárður beið mjög spakur í skotgröfunum lengst af og bauð Aleksandr upp á að taka allar áhætturnar…svarta staðan traust.

Varnaraðferð Bárðs með Rd7-f8-h7 minnti um margt á nýlega uppástungu áðurnefnds Colovic um varnaraðferð gegn hinni svokölluðu kóngsindversku árás (KIA). Greinarhöfundur beitti þessari aðferð á Íslandsmótinu í netskák í spennandi skák en ósagt skal látið hvort Bárður hafi verið í sama þankagangi.

Skotgrafarhernaður Bárðar virkaði í dag

Eftir langa og stranga baráttu má segja að Aleksandr með hvítt hafi einfaldlega teygt sig of langt. Bárður sýndi góða þolinmæði og þegar hvíta staðan var komin yfir þolmörk fór Bárður að plokka peðin af hvítum og landaði góðum sigri. Skellur fyrir áfangavonir Aleskandrs en gefur Bárði byr undir báða vængi í IM-áfanga veiðum.

 Paulius Pultinevicius – Hilmir Freyr Heimisson

Fjölnismaðurinn Paulius Pultinevicius er fjandi góður í skák! Í skák þeirra Hilmis tefldu þeir Benoni með skiptum litum og Paulius náði b4 framrásinni nokkuð auðveldlega. Þetta gerði það eiginlega að verkum í kjölfarið að Hilmir lenti í vandræðum með kallana sína.

19.b5 Re7 20.b6 Bb8 21.c6! og svartur er í köðlunum. Hilmir gaf mann en fékk ekki nægjanlegt spil og átti aldrei séns í þessari skák.

Mykhailo OleksiyenkoValery Kazakouski

Kazakouski fékk aftur svart í umferðinni og aftur tefldi hann hollenska vörn. Í gær vann hann gegn Degi en það farnaðist ekki jafn vel í dag gegn Oleksiyenko. Svartur var svosem ekki í neinum vandræðum eftir byrjunina. Fjölnismaðurinn gaf peð en fékk þess í stað gott hald á hvítum reitum á borðinu. Eftir 24…Rxb5? virðist skákin sveiflast. Kazakouski lenti í óvæntum vandræðum með kóng sinn og þegar menn náðu áttum kom á daginn að svarta kóngnum var ekki viðbjargandi!

Sterkur sigur hjá Oleksiyenko upp á framhaldið í toppbaráttunni.

Úrslit umferðarinnar:

Engin jafntefli í umferðinni en umferðin datt ekki nógu vel hjá íslensku keppendunum. Hvíti liturinn drjúgur, 4 vinningar af 5 lentu hjá hvítu mönnunum.

Staðan:

Paulius og Jaime hafa fullt hús, 2 vinninga af 2 mögulegum. Þrír Íslendingar hafa einn vinning.

Næsta umferð:

Mótið heldur áfram á morgun Stúkunni í Kópavoginum en skákirnar hefjast 15:00. Hilmir og Aleksandr mætast og þurfa eiginlega báðir sigur til að halda normasénsum í gangi.

Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

Forsvarsmenn mótsins ásamt Jóhönnu forseta og Ásdísi bæjarstjóra Kópavogs.

Kópavogur International 2026

Almennar upplýsingar um mótið:

Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.

Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)

  • Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferð
  • Miðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferð
  • Fimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferð
  • Föstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð
  • Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
  • Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
  • Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
  • Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
  • Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
  • Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn

Keppendur

Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.

Frekari upplýsingar:

- Auglýsing -