Marsmót Skákfélags Mosfellsbæjar fór fram laugardaginn 14. mars. Góð þátttaka var í mótinu og tefldar voru sjö umferðir. Mótið var reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Ungir sem aldnir kepptu við góðar aðstæður og var stemningin með besta móti.

Sigurvegari mótsins varð Rögnvaldur Jónsson (1743) með 6 vinninga af 7 mögulegum. Rögnvaldur bætti þar með stöðu sína frá fyrra móti, þar sem hann hafnaði í þriðja sæti, og steig nú upp á toppinn.

Í öðru sæti varð Kjartan Ragnars með 5,5 vinninga, en hann átti gott mót. Tómas Rasmus (1782) átti einnig gott mót og hafnaði í þriðja sæti, einnig með 5,5 vinninga.

Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til næsta móts í mótaröð félagsins.

Sjá úrslit mótsins á chess results.

chess results:

 

- Auglýsing -