Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu árið 2026 er lokið. Saga mótsins var svo sannarlega sigurganga íranska ofurstórmeistarans Amin Tabatabaei sem gerði atlögu að fullu húsi en varð að sætta sig við tvö jafntefli í lokaumferðunum. Amin kom í mark með 8 vinninga af 9, öruggur sigurvegari. Vignir Vatnar náði ótrúlegum seiglusigri í lokaumferðinni og varð efstur Íslendinga með 6,5 vinning í skiptu 10. sæti.

_D0A7772

Í lokaumferðinni mæti Amin Dananum Mads Andersen (sjá mynd að ofan) sem hefur verið að tefla traust á mótinu.  Amin beitti Jobava-London kerfinu svokallaða en það er kannski ekki skrýtið enda er Amin ágætis vinur Hans Niemann sem er einn af mörgum sem hafa gefið út byrjananámskeið um þessa ágætu byrjun.

Amin hafði ekki úr miklu að moða í byrjuninni og ef eitthvað var Mads með örlítið betra tafl. Íraninn náði samt að vinna peð seint í miðtaflinu og átti örlitla vinningssénsa.

Sennilega fóru sénsarnir hér. Amin lék 39.Hc8? og staðan einfaldaðist um of og varnarkraftar mislitu biskupana hjálpuðu Mads að halda taflinu. Hvítur átti skv. tölvuforritum betri vinningssénsa með því að halda hrókum inná og 39.Da7 er mjög vænlegt á hvítt. Sá íranski var eilítið fúll að ná ekki að klára dæmið en sigurinn á mótinu mjög öruggur.

_D0A7770

Ivanchuk hafði vænlegt tafl gegn Vahap Sanal á öðru borði. Sigur í skákinni hefði sett hann í 2. sætið á mótinu en á ögurstundu brást Ivanchuk bogalistin.

Ivanchuk var tæpur á tíma hér og lék 48.Db8?? og skákin endaði með þráskák stuttu síðar. 48.b3! rýfur valdið á f7 reitinn og svartur getur gefið.

Tómas Tandri náði myndefni af kostulegum viðbrögðum Ivanchuk eftir skákina og þegar Garifullina sýndi honum vinningsleikinn.

Jafntefli því niðurstaðan og Ivanchuk varð að gera sér 3. sætið að góðu.

_D0A7789

Jianchao Zhou lyfti sér upp í 2. sætið með því að leggja Matthew Wadsworth (mynd að ofan). Þessi bandaríski skákmaður komst í fréttirnar á dögunum með því að ná ógnvænlegum fjölda skák í röð án taps! Hann yfirspilaði Englendinginn algjörlega í miðtaflinu og gafst Wadsworth upp þegar Zhou var búinn að plokka af honum nokkur peðin og stóð til vinnings.

_D0A7786

Vignir náði að verða efsti íslenski keppandinn með seiglusigri í lokaumferðinni. Vignir þvældi endatafl sem er jafntefli með bestu taflmennsku en ætlaði ekki að gefa sig. Vignir vissi vafalítið að möguleikarnir væru litlir enda betra að játa sanna sök en að neita!

Xeniya var sú eina sem lagði Vigni að velli á Harpa Blitz um daginn og náði Vignir fram hefndum þegar sú Kazaksta missti f-peð sitt í endataflinu hrókur og h- og g-peð gegn f-peði. Vignir sýndi svo flotta tækni með peðin og innbyrti vinninginn.

_D0A7784

Segja má að okkar bestu menn hafi fengið hálfgerðan landsleik við Frakka. Dagur mætti Cornette með svörtu en fyrir umferðina var Dagur efstur Íslendinga. Cornette fékk hættulega sóknarstöðu og vörn Dags fór að hraka þegar hann tapaði skiptamun í miðtaflinu.

_D0A7785

Guðmundur Kjartansson kom í veg fyrir hreinsun Frakkana þegar hann gerði jafntefli við Maurizzi. Guðmundur hafði eitthvað betri færi í skákinni en niðurstaðan varð að lokum jafntefli.

_D0A7782

Hann laut í dúk gegn Lagarde. Kóngsstaðan Hannesar varð varhugaverð í miðtaflinu og sá franski fór í stórárás á f-línunni sem heppnaðist.

_D0A7787

Útvarpsstjarnan Björn Þorfinnsson lét ekki (Stav)rúlla yfir sig gegn Stavroula Tsolakidou og náði traustu jafntefli við grísku stjörnuna.

Mjög furðulegt jafntefli varð á einu af útsendingarborðunum. Furðulegur rúlluskautavaríantur, smá fnykur af einhverskonar samþykki beggja. Það skrýtnasta er ef til vill að þegar hvítur þráskákar í lokin er staðan unnin á hvítt!

Myndapakki úr 9. umferð (smellið á örina til hægri til að sjá næstu myndir!)

Reykjavik Open Round 9

Helstu úrslit:

Staða efstu skákmanna:
.

Tabatabaei öruggur sigurvegari. Jianchao stalst í annað sætið með góðum sigri en Ivanchuk hefur besta oddastigin og tekur 3. sætið. Vignir efstur Íslendinga.

Einhverjir Íslendingar mega vel við una stigalega að móti loknu. Robin Peter Erlendsson var aflakóngur en hann hækkaði um 94 elóstig á mótinu. Akureyringurinn Markús Orri Óskarsson átti mjög fína spretti á þessu móti og hækkar um 70 elóstig, sá stigagróði kemur í kjölfarið á stigagróða í Mónakó fyrir rétt rúmri viku, góður mánuður hjá Markúsi!

 

Úrslit, lokastaða:

Hægt er að nálgast skákir á:

Streymarar:

Efni frá mótshöldurum:

Annað:

- Auglýsing -