Guðrún Fanney að tafli í Batumi. Mynd: ECU

Landsliðsstúlkan Guðrún Fanney Briem náði að leggja alþjóðlegan meistara að velli á alþjóðlegu opnu móti í Alicante sem hófst í dag. Allmargir keppendur frá Reykjavíkurskákmótinu taka þátt, t.d. Vasyl Ivanchuk, Carissa Yip og fleiri. Kandídatameistarinn Halldór Halldórsson tekur einnig þátt á mótinu.

Guðrún hafði svart gegn indverska meistaranum Sahib Singh (2376). Singh beitti afbrigði gegn sikileyjarvörn sem Carlsen gerði vinsælt með sigri á Wojtazsek á sínum tíma.

13. leikur hvíts kóngur til b1 reyndist slakur!

Guðrún svaraði 13…Rh5 og hvítur er í vandræðum. Það hangir bæði á c3 og f4 og ekki gott að eiga við það. Guðrún vann gott peð og fór auk þess í hættulega sókn.

18…Hxc3! eiginlega klára dæmið fyrir svartan hér!

Flott skák hjá Guðrúnu, hennar fyrsti sigur á alþjóðlegum meistara í kappskák.

Halldór mætti alþjóðlegum meistara líka og fékk fínt tafl með hvítu. Halldór stóð eitthvað betur en fór að taka glannalegar ákvarðanir í miðtaflinu og einhverjar líkur á að hann hafi nú bara viljað komast í sólbað!

Pörun er ekki komin í 2. umferð.

- Auglýsing -