Kristján Ingi Smárason vann sigur á héraðsmóti HSÞ í skák 2026 sem fram fór í Túni á Húsavík í dag. Kristján fékk 4 vinninga af 5 mögulegum. Ádám Gulyás varð í öðru sæti á mótinu, einnig með 4 vinninga, en lægri á oddastigum. Smári Sigurðsson varð þriðji með 3,5 vinninga. Þetta var í 16 skiptið sem mótið er haldið og í fyrsta skiptið sem Kristján vinnur þennan titil.
Tefld var einföld umferð, allir við alla og tímamörkin voru 15+3. Einungis 6 keppendur tóku þátt í mótinu en tveir hættu við þátttöku á síðustu stundu.
- Auglýsing -
















