Skólaskákmót Austurlands fór fram 19. apríl síðastliðinn í Egilsstaðaskóla.
Þetta er í fyrsta sinn í rúman áratug sem skólaskákmót fer fram fyrir austan, svo það er mikið fagnaðarefni að skólaskákstarf sé komið aftur af stað á svæðinu.
Umhugsunartími var 5 mín. á skákina + 2 sek á hvern leik.
1.-4. bekkur
- Oliver Unnsteinn Steinarsson 6 vinningar Egilsstaðaskóli
- Egill Ingi Baldursson 4 vinningar Egilsstaðaskóli
- Gústaf Páll Þórðarson 1,5 vinningur Egilsstaðaskóli

5.-7. bekkur
1. Stefán Þór Skúlason 5 vinningar Vopnafjarðarskóli
2. Inga Hrafney Stefánsdóttir 3,5 vinningur Egilsstaðaskóli
3. Baltasar Rökkvi Hafliðason 3 vinningar Egilsstaðaskóli

8.-10. bekkur
- Jóhannsson Ísak Gunnsteinn 4 vinningar Reyðarfjarðarskóli
- Kristófer Franz Svansson 2 vinningar Vopnafjarðarskóli
- Valdemar Axel 0 vinningar Eskifjarðarskóli

Oliver Unnsteinn Steinarsson úr Egilsstaðakóla, Stefán Þór Skúlason Vopnafjarðarskóla og Ísak Gunnsteinn Jóhannsson Reyðarfjarðarskóla öðlast rétt til þátttöku í Landsmóti í skólaskák, sem fram fer í Ólafsvík í maí.
Mótið fór vel fram og gekk greiðlega fyrir sig. Það voru félagar í SAUST, Skáksambandi Austurlands, Guðmundur Ingvi Jóhannsson og Magnús Valgeirsson sem sáu um skákstjórn. Agla Þorsteinsdóttir deildarstjóri frístunda hjá Múlaþingi sá um undirbúning mótsins og annað utanumhald í samstarfi við Skáksamband Íslands. Þessir aðila eiga þakkir skildar fyrir.

















