Önnur umferð fór fram í dag á Heimsmeistaramóti öldungasveita sem fram fer í Durres í Albaníu.  Ísland vann þægilegra sigra í 50+ og 65+ en vestfirska sveitin gerði jafntefli gegn sveit frá Albaníu.

65+ flokkur

í annarri umferð mætti íslenska sveitin í 65+ liði England-3. Áskell Örn hvíldi að þessu sinni og Helgi Ólafsson kom inn á efsta borð.

Helgi kom sterkur til leiks gegn Anthony Stebbings, traustum FIDE meistara sem stýrði hvítu mönnunum. Segja má að hér hafi Helgi mætt í „vintage“ formi og gjörsamlega ýtti Stebbings útaf borðinu sem ætlaði greinilega að tefla traust gegn Helga. Mjög góð skák sem skemmtilegt er að skoða.

Margeir fékk þægilegt endatafl upp úr Catalan byrjuninni og gat pínt andstæðing sinn langt fram eftir skák. Svartur gat náð jafntefli alveg í endann en pressa yfir svona langan tíma er alltarf erfitt.

Jón L. vann sinn andstæðing nokkuð auðveldlega. Jón tók rýmið snemma með svörtu og taktískar aðgerðir svarts voru auðveldari að öllu leiti…allt flæðið var í svörtu stöðunni. Fínn sigur.

Þorsteinn gerði jafntefli á fjórða borði. Mögulega var Þorsteinn með eitthvað betra í lokastöðunni en tók enga sénsa.

Úrslit:

Þægilegur 3.5-0.5 sigur hjá íslenska liðinu. Næst á dagskrá er sveit Ítalíu sem er 8. stigahæsta sveitin og ágætlega þétt.

50+ flokkur

Ágúst Sindri hvíldi hjá íslenska liðinu í 50+

Jóhann kom inn í sína fyrstu skák og var einfaldlega betri en andstæðingurinn í flóknu miðtafli.

Á öðru borð tefldi Þröstur með hvítu og andstæðingur hans tefldi vel og jafntefli niðurstaðan. Engum bátum ruggað, menn með fína liðakeppnistaflmennsku.

Á þriðja borði gerði Karl jafntefli með svörtu, varðist í hróksendatafli peði undir

Rúnar Sigurpálsson hefur komið sterkur inn á mótið og vann aftur í dag.

Lokaniðurstöður 1-3 fyrir íslenska liðinu:

Vestfirðingarnir gerðu aftur 2-2 jafntefli við stigalægri sveit.

Á morgun fær Ísland sveit Englands-1 en Vestfirðingar mæta Norðurljósaliði Finna. Erfitt verkefni hjá Íslandi en England-1 hefur á að skipa Michael Adams á efsta borði og auk þess stórmeistara á öllum borðum. Verður erfið viðureign!

Um mótið:

Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.

Sveit Íslands í 65+

GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121

Sveit Íslands í 50+ skipa

GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236

Sveit Vestfirðinga er skipuð:

FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105

- Auglýsing -