Þriðja umferð fór fram í dag á Heimsmeistaramóti öldungasveita sem fram fer í Durres í Albaníu. Íslensku sveitirnar töpuðu báðar í 50+ og 65+ en vestfirska sveitin náði sigri með minnsta mun eftir og þrátt fyrir mikla jafnteflishrinu.
65+ flokkur
Í dag fór að sverfa til stáls, sterkt lið Ítala var verkefni dagsins í þriðju umferð í 65+. Þorsteinn Þorsteinsson hvíldi. Einhverra hluta vegna hafa ítölsku sveitirnar reynst okkar mönnum erfiðar á þessum mótum og því miður varð það raunin í dag.

Helgi hafði hvítt gegn Carlos Garcia Palermo (2394), stórmeistara. Lítið gerðist í skákinni og jafntefli samið í stöðu þar sem erfitt var fyrir báða að reyna eitthvað af viti.
Margeir jafnaði taflið nokkuð þægilega og virtist hafa örlítið betra tafl og geta þæft stöðuna eitthvað áfram og séð hvernig aðstæður væru á öðrum borðum með þægilegan peðameirihluta á drottningarvæng. Því miður missti Margeir af leið Ortega til að koma drottningu sinni í spilið og á svipstundu hrundi svarta staðan og hvítur komin með mátsókn. Svekkjandi tap sem var ekki í samræmi við flæði skákarinnar.
Jón L. Árnason hafði þá þegar lokið sinni skák. Á tímabili virtist Jón ætla að vinna auðveldan sigur, vann peð svarts á h5 og var peði yfir með möguleika á kóngssókn. Svartur varðist þó vel og Jón hugði ekki nægjanlega vel að hróki sínum sem allt í einu var orðinn strandaglópur á kóngsvængnum. Ítalinn stóð líklega til vinnings þá en þvingaði fram jafntefli með þráleik í staðinn!
Rf6-h7-f6 var þráleikurinn en ef svartur teflir í kringum hrókinn á g5 hlýtur svarta staðan að vera unnin. Svartur á ýmsa möguleika, t.d. að leika f6 og svara alltaf h5 með …g5. Hvíti hrókurinn er einfaldlega úr leik!
Áskell varð nú að vinna sína skák til að jafna viðureignina. Áskell með svörtu fann skemmtilega skiptamuns til að tefla til vinnings og litlu mátti muna.
Hér var Áskell mögulega of spakur til að geta unnið, lék 39…Bc6 en 39…e3 allavega spyr hvítan spurninga. Hvítur á björgun útaf vitlausu kantpeði en þarf að finna nokkra nákvæma leiki. Áskell reyndi en allt kom fyrir ekki, vörnin of einföld og jafntefli niðurstaðan.
Úrslit:
Svekkjandi tap með minnsta mun sem gæti orðið dýrkeypt þegar talið verður úr kössunum. Næst á dagskrá er hollensk sveit í 4. umferðinni.
50+ flokkur
Karl Þorsteins hvíldi hjá íslenska liðinu í 50+
Erfitt verkefni hér, stórmeistarar á öllum borðum!
Jóhann fékk það verkefni að glíma við Adams á efsta borði. Skákin varð að maraþonskák, Adams reyndi í 127 leiki að finna leiðir í gegnum stöðu Jóhanns en varð ekki kápan úr klæðinu. Jóhann mun þó vafalítið þurfa hvíla á morgun eftir þessa skák!
Á öðru borð tefldi Þröstur með hvítu og andstæðingur hans tefldi vel og jafntefli niðurstaðan. Engum bátum ruggað, menn með fína liðakeppnistaflmennsku.
Á þriðja borði náði Ágúst Sindri í mikið og gott seiglujafntefli gegn refnum Mark Hebden. Vörnin í endataflinu var erfið en Ágúst leysti verkefni með sóma.
Rúnar lenti líka í hörkuvörn en náði ekki að landa jafnteflinu gegn Emms. Staða svarts var mjög þröng og erfið lengst af tölvurnar með hátt í 3 í plús á hvítt með jafnt á liði sem sýnir hvað staðan var erfið á köflum. Emms sýndi styrk sinn og tryggði Englendingum sigur í viðureigninni.
Lokaniðurstöður 1.5-2.5 tap hjá íslenska liðinu:


Vestfirðingarnir unnu með minnsta mun í sinni viðureign. Guðmundur Gíslason vann sína skák en aðrar enduðu með jafntefli, 7 af síðustu 8 skákum verið jafntefli hjá Vestfirðingunum sem komast nú vonandi í gang.

Á morgun fær Ísland sveit Englands-3 en Vestfirðingar mæta brasilískri sveit.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results 50+ | 65+
- Skákir á lichess 50+ | 65+
Um mótið:
Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.
Sveit Íslands í 65+
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121
Sveit Íslands í 50+ skipa
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236
Sveit Vestfirðinga er skipuð:
FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105

















