Landsmótið í skólaskák fer fram dagana 9. og 10. maí í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.
Teflt verður í þremur tólf manna flokkum eftir round-robin kerfi, þar sem allir tefla við alla.
Flokkarnir eru: 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.

Dagskrá:
- Laugardagurinn 9. maí 1.-6. umferð Kl. 14:00-19:00
- Keppendum boðið í pizzuveislu
- Sunnudagurinn 10. maí 7.-11. umferð Kl. 11:00-16:00
Verði keppendur jafnir í efsta sæti tefla þeir aukakeppni um titilinn með hraðskáktímamörkum, 5 mín. á skák + 3 sek. á hvern leik. Aukakeppni fer fram að lokinni verðlaunaafhendingu ef hægt er. Um önnur sæti gilda oddastig.
Verðlaun í elsta flokki:
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Verðlaun í yngri flokkum
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Aðeins er hægt að vinna til einna verðlauna.
Engin þátttökugjöld en keppendur þurfa að koma sér sjálfir á staðinn.
Hægt er að óska eftir ferðastyrk ef ferðalagið er meira en 1.000 km samtals í akstri.
Keppendum stendur til boða að gista í Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík.
Landsmótsstjóri 2026 verður Gauti Páll Jónsson (gauti.pall.jonsson@reykjavik.is).


















