Síðasti keppnisdagur fór fram í dag á Kronborg Open í Danmörku. Tefld var níunda umferð í 10-manna flokkunum og sjöunda umferð í 8-manna.

Dagur kláraði IM-grúppuna með jafntefli í tíðindalítilli skák þar sem hann var aldrei í hættu.

Dagur endaði með 5 vinninga af 9 í sinni IM-grúppu.

Hilmir Freyr endaði með jafntefli við vin sinn Mikkel og endaði með 5,5 vinning í 9 skákum.

Tvíburarnir Björn Hólm og Bárður Örn Birkissynir enduðu báðir með 3,5 vinning af 7. Björn gerði jafntefli í dag en Bárður vann sína skák.

Ólafur Guðmarsson tapaði sinni skák í Masters-9 og endaði með 2,5 vinning af 7  Jóhann Ragnarsson gerði jafntefli í Master-10 og komst í mark með 5,5 vinning af 7 og má vel við una.

Skákir beint:

Beinir tenglar á úrslitsíðu mótsins

Um mótið:

Kronborg „open“ er samansafn af lokuðum flokkum þar sem allir tefla við alla. Flokkarnir eru allt frá GM flokkum og IM flokkum niður í fjölda Masters-flokka og jafnvel niður í Basic-flokka. Í öllum flokkum fá skákmenn andstæðinga á sínu styrkleikabili!

IM Dagur Ragnarsson tekur þátt í IM-flokki, Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr skráði sig seint til leiks og styrkir WIM-grúppuna, Birkissynir í Master 1 flokki, Ólafur Guðmarsson í Masters-9 og Jóhann Ragnarsson í Master 10. Tvær efstu grúppurnar af þessum hófu taflmennsku í dag en hinar á morgun!

- Auglýsing -