Mikið var um skemmtilegar skákir og óvænt úrslit í fjórðu umferð í Áskorendaflokki Skákþings Íslands sem kláraðist nú seint í kvöld. Ungu strákarnir halda áfram að láta af sér kveða og ljóst að enginn getur gengið að nokkurri skák sem auðveldri! Fréttnæmast hlýtur að teljast sigur Hauks Víðis Leóssonar á stigahæsta manni mótsins, Sigurbirni Björnssyni. Gauti Páll Jónsson og Óskar Víkingur Davíðsson skildu jafnir í uppgjöri einu skákmannana sem höfðu fullt hús fyrir umferðina.
Gauti Páll Jónsson hafði hvítu mennina gegn Óskari Víkingi og upp kom sikileyjarvörn. Óskar missti af góðu tækifæri á að ná góðu frumkvæði eftir ónákvæman leik Gauta, 14.Rh5? (14.c4! gefur hvítum örlítið betra tafl).
Hér hefði 14…Rxh5 og svo 15…e4 gefið svörtum þægilega betra tafl. Í kjölfarið urðu uppskipti og staðan einfaldaðist töluvert. Líklega fá færi á bóða bóga til að tefla upp á eitthvað og þráleikur rökrétt niðurstaða eins og skákin tefldist.

Vinirnir og TR-ingarnir Ingvar Wu og Adam Omarsson gerðu jafntefli í uppskiptaafbrigði kóngsindverskrar varnar, róleg skák.

Á þriðja borði mættust Sigurbjörn með hvítt og Haukur Víðis Leósson. Upp kom frönsk vörn. Í miðtaflinu tók Sigurbjörn á sig lemstraða peðastöðu sem virtist ekki þvinguð ákvörðun. Haukur fékk þægilegra tafl og hélt pressu fram í endataflið. Þar kláraði Haukur með frábærri leikfléttu!
43…Hh3+ 44.Kc4 Hb3!! mögnuð geómetría! Hvíti hrókurinn á enga reiti á sjöttu reitaröð og er neyddur í uppskiptin. Peðsendataflið er svo unnið á svart útaf frípeðinu á h-línunni. Skemmtilega teflt hjá þessum efnilega skákmanni!



Helstu úrslit 4. umferðar
Gauti Páll Jónsson – Óskar Víkingur Davíðsson ½–½
Ingvar Wu Skarphéðinsson – CM Adam Ómarsson ½–½
FM Sigurbjörn Björnsson – Haukur Víðis Leósson 0–1
Halldór Pálmi Bjarkason – Markús Orri Óskarsson ½–½
Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson – WCM Guðrún Fanney Briem 1–0
CM Björn Hólm Birkisson – Sigurbjörn Hermannsson 1–0
FM Bárður Örn Birkisson – Haraldur Baldursson 1–0
Mikael Jóhann Karlsson – WCM Iðunn Helgadóttir 1–0
Stefán Orri Davíðsson – Stefán Steingrímur Bergsson ½–½
Pétur Úlfar Ernisson – Leó Mar Jóhannsson 1–0
Staða efstu manna eftir 4 umferðir
Gauti Páll Jónsson – 3,5 vinningar
Óskar Víkingur Davíðsson – 3,5 vinningar
Haukur Víðis Leósson – 3 vinningar
CM Adam Ómarsson – 3 vinningar
Josef Ómarsson – 3 vinningar
Birkir Hallmundarson – 3 vinningar
Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson – 3 vinningar
CM Björn Hólm Birkisson – 2,5 vinningar
Mikael Jóhann Karlsson – 2,5 vinningar
Ingvar Wu Skarphéðinsson – 2,5 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 2,5 vinningar
Markús Orri Óskarsson – 2,5 vinningar
Halldór Pálmi Bjarkason – 2,5 vinningar
Markús Orri Jóhannsson – 2,5 vinningar
Að lokinni fjórðu umferð eru þeir Gauti Páll Jónsson og Óskar Víkingur Davíðsson efstir með 3,5 vinning en pakkinn fyrir aftan þá þéttur.
Helstu viðureignir í 5. umferð
Birkir Hallmundarson – Gauti Páll Jónsson
Óskar Víkingur Davíðsson – Josef Ómarsson
CM Adam Ómarsson – Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson
Haukur Víðis Leósson – Mikael Jóhann Karlsson
FM Bárður Örn Birkisson – Ingvar Wu Skarphéðinsson
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 mínútna seinkun)
Alls taka 34 skákmenn í mótinu og eru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda eru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.

















