FIDE birti ný alþjóðleg skákstig 1. júní. Jóel Helmer Tobiasson hækkaði mest en öldungar landsins áttu góðan mánuð.

Stigahæstu skákmenn og konur

Vignir Vatnar Stefánsson (2540) er stigahæstur íslenskra skákmanna og Lenka Ptácníková (2106) er stigahæst íslenskra skákkvenna. Litlar breytingar voru á efstu mönnum í mánuðinum.

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2239) er stigahæstur ungra skákmanna. Theodór Eiríksson (1845) kemur nýr inn á topp 20 listann.

Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur á vizkualdrinum en margir á listanum hækka eftir gott HM öldunga. Karl Þorsteinsson (2407)kemur aftur inn á lista með virk stig og hækkar um 3 stig í þokkabót.

Breytingar

Jóel Helmer Tobiasson (1635) hækkaði um 94 stig í mánuðinum og á líklega meiri hækkun inni. Theódór Helgi Eiríksson hækkaði um 49 stig og Jóhann Hjörtur Ragnarsson (1995) sigraði sinn flokk í Kronborg og náði sér í 35 stig.

Fjöldi

Dagur Ragnarsson og Hilmir Freyr Heimisson tefldu báðir 18 kappskákir í mánuðinum og bræðurnir Bárður og Björn Birkissynir tefldu 16.

Nýir á lista

7 komu nýir inn á lista í mánuðinum. Tauras Nareika þeirra stigahæstur með 1555 stig.

- Auglýsing -