Í dag fór fram níunda umferð á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova átti ekki góðan dag og náði sér engan veginn á strik gegn lettnesku skákkonunni Madara Golsta (2023).
Lenka hafði hvítt og fékk fljótt aðeins verra tafl. Í miðtaflinu lagði Lenka allt undir á löngu skálínuna en hlýtur að hafa yfirsést svar andstæðingsins. Sú lettneska endaði skiptamun yfir í endatafli og Lenka varð að lúta í dúk.
Lenka hefur áfram 3,5 vinning og mætir Barbare Ashotie (1913) frá Georgíu.
Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu. Teflt er á hverjum degi, utan eins frídags.
- Auglýsing -


















