Þröstur Þórhallsson

Önnur umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu. Íslensku keppendurnir fjórir lönduðu 3,5 vinningum af 4 og hafa íslensku keppendurnir til þessa aðeins leyft eitt jafntefli það sem af er móti.

Flokkur (50+)

Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494). Íslensku keppendurnir unnu allir í fyrstu umferðinni í gær.

Jóhann Hjartarson hafði hvítt gegn ítölskum alþjóðlegum meistara Renzo Mantovani. Jóhann fékk betri stöðu og virtist á tímabili vera korter í óstöðvandi mátsókn. Eitthvað klikkaði í úrvinnslunni og Renzo slapp með skrekkinn í hróksendatafl sem hann náði að halda.


Henrik þjarmaði stöðulega að sínum andstæðingi FIDE meistaranum Melikhov og kreysti úr honum líftóruna nokkuð klassískt á svörtu reitunum í Benoni-stöðutýpu. Léttur sigur.


Þröstur Þórhallsson lagði alþjóðlega meistarann Claude Adrian að velli með hvítu. Sannfærandi sigur hjá Þresti sem réðist að veikri kóngsstöðu andstæðings síns og var kominn með mátsókn þegar hann gafst upp.

3. umferð fer fram á morgun, þar mætast:

Henrik – IM Collutis
IM Jacob Sylvan – Þröstur
CM Di Fonzo – Jóhann

Flokkur (65+)

Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.

Svínn Björn Jaderberg (2074) var á matseðlinum hjá Margeiri í dag…engin þörf var á hægeldun og snöggsteikti Margeir Svíann sem átti aldrei möguleika.

Í 3. umferð mætir Margeir enskum FIDE-meistara Peter Varley.

 

- Auglýsing -