Fimmta umferð fór fram í kvöld í Áskorendaflokki Skákþings Íslands. Óskar Víkingur Davíðsson tók forystuna með því að leggja Josef Omarsson að velli. Á sama tíma skildu þeir Birkir Hallmundarson og Gauti Páll Jónsson jafnir að vígi þannig að Óskar er orðinn einn efstur.

Á efsta borði skildu Birkir og Gauti jafnir. Skák þeirra fór aldrei á neitt flug og þráskák rökrétt úrslit eftir uppskipti í drottningarendatafl.

Óskar vann góðan sigur með hvítu gegn Josef. 14. leikur svart 14…fxe6 var slakur og riddari hvíts varð stórveldi á e4 og hvítur gat stjórnað skákinni í kringum hann.

Adam blandaði sér í toppbaráttuna með því að leggja Þorstein Jakob að velli

Helstu úrslit 5. umferðar

Birkir Hallmundarson – Gauti Páll Jónsson ½–½
Óskar Víkingur Davíðsson – Josef Ómarsson 1–0
CM Adam Ómarsson – Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson 1–0
Haukur Víðis Leósson – Mikael Jóhann Karlsson 0–1
FM Bárður Örn Birkisson – Ingvar Wu Skarphéðinsson 1–0
CM Björn Hólm Birkisson – Halldór Pálmi Bjarkason 1–0
Markús Orri Óskarsson – Markús Orri Jóhannsson 1–0
Karma Halldórsson – FM Sigurbjörn Björnsson 0–1
Stefán Steingrímur Bergsson – Pétur Úlfar Ernisson 0–1

Staða efstu skákmanna eftir 5 umferðir

Óskar Víkingur Davíðsson – 4,5 vinningar
Gauti Páll Jónsson – 4 vinningar
CM Adam Ómarsson – 4 vinningar
Mikael Jóhann Karlsson – 3,5 vinningar
CM Björn Hólm Birkisson – 3,5 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 3,5 vinningar
Markús Orri Óskarsson – 3,5 vinningar
Birkir Hallmundarson – 3,5 vinningar
Sigurbjörn Hermannsson – 3 vinningar
Haukur Víðis Leósson – 3 vinningar
FM Sigurbjörn Björnsson – 3 vinningar
Pétur Úlfar Ernisson – 3 vinningar

Að lokinni fimmtu umferð eru Óskar Víkingur Davíðsson einn efstur með 4,5 vinning en svo koma Gauti Páll og Adam með 4 vinninga.

Helstu viðureignir 6. umferðar

Óskar Víkingur Davíðsson – CM Adam Ómarsson
Gauti Páll Jónsson – FM Bárður Örn Birkisson
Mikael Jóhann Karlsson – CM Björn Hólm Birkisson
Markús Orri Óskarsson – Birkir Hallmundarson
FM Sigurbjörn Björnsson – Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson
Josef Ómarsson – Örvar Hólm Brynjarsson
Pétur Úlfar Ernisson – Haukur Víðis Leósson

Skemmtilegar viðureignir framundan, þar á meðal uppgjör ungstirnanna Pétur gegn Hauki!

Alls taka 34 skákmenn í mótinu og eru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda eru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.

 

 

- Auglýsing -