Íslandsmeistari kvenna Lenka Ptacnikova (2106) hóf taflmennsku á Teplice Open í Tékklandi nú um helgina. Tefld er ein umferð á dag í þessu flokkaskipta móti. Á laugardeginum laut Lenka í dúk gegn stórmeistaranum Jiri Stocek (2482) og í dag varð tap staðreynd gegn ungum pólskum skákmanni, Piotr Czeremcha (1938). Lenka reynir að koma sér af stað gegn Sultan Zayed (1934) í þriðju umferðinni á morgun.
Lenka hafði hvítt gegn stórmeistaranum Jiri Stocek í fyrstu umferð, skákin var í beinni á netinu. Tékkneski stórmeistarinn fékk lyklavöld að stöðunni full auðveldlega, fékk snemma betra tafl og svartur vann í 24 leikjum.
Lenka mætir á morgun skákmanni frá Sameinuðu arabísku-furstadæmunum Sultan Zayed (1934) og ætti að komast í gang á mótinu ef allt er eðlilegt.
















