Síðasta umferðina fór fram á HM ungmenna í dag en mótið fór fram á Montesilvano á Ítalíu. Guðrún Fanney Briem (2026) í U16 stúlkna gerði jafntefli í lokaumferðinni en Birkir Hallmundarson (2007) í U14 flokknum tapaði sinni skák gegn mjög sterkum andstæðing.

Guðrún hafði hvítt í sinni skák og upp kom London-byrjunin. Andstæðingur hennar Nora Toomast (1639) frá Eistlandi virtist ætla að láta hartnær máta sig úr byrjuninni en náði að sleppa úr snörunni. Á kafla var Guðrún svo hætt komin í endataflinu en náði að halda jafnteflinu.
Guðrún endaði með 4 vinninga af 11 og náði sér engan veginn á strik eftir sterka byrjun. 162 elóstig töpuðust hjá Guðrúnu á mótinu. Guðrún endaði í 86. sæti en var númer 28 í styrkleikaröðinni.

Birkir hafði svart gegn Joachim Le Geay (2365) og komst ekki nægjanlega klakklaust út úr byrjuninni.
Birkir endaði með 5,5 vinning af 11 og tapar 4,4 elóstigum á mótinu. Hann endaði í 74. sæti en var númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14














