Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson tefldu í dag tvöfalda umferð á alþjóðlegu móti á Korsíku, Porticcio Open. Um var að ræða fimmtu og sjöttu umferð. Þeir standa ágætlega að vígi eftir erfiðan dag.

Guðmundur gerði jafntefli með svörtu gegn stórmeistaranum Andrey Sumets í fimmtu umferðinni. Andstæðingur hans tefldi Catalan-byrjun og tefldi Guðmundur af öryggi og var aldrei í neinni hættu, gott jafntefli.
Í seinni skákinni mætti Guðmundur kandídatameistaranum Stefan Maltezeanu frá Lúxemburg. Kandídatameistarinn var líklegast sleginn einhverri skákblindu því mannsfórn hans í 17. leik leit út fyrir að vera í besta falli kjánaleg. Guðmundur vannn örugglega, eini mínusinn í kladdann var að vekja ekki upp hrók í lokin!

Björn hafði svart gegn sterkum þýskum IM sem er grjótharður á Chess.com t.a.m. og með yfir 3200 elóstig þar! Sá þýski tefldi vel með hvítu, Birni vantaði aðeins meiri reynslu í stöðutýpunni sem kom upp og lenti eiginlega í þjáningu heldur snemma og átti litla möguleika í skákinni.
Birni vantaði alls ekki reynslu í stöðutýpunni sem upp kom í seinni skákinni. Björn hefur teflt þetta afbrigði oft og bætti taflmennsku sína frá því gegn Vigni á Íslandsmótinu og virtist hafa allt á hreinu. Björn fæddist til að „þrykkja niður FIDE-meistara!“
Að lokinni þessari tvöföldu umferð hefur Guðmundur 4,5 vinning af 6 og er í grennd við toppinn en Björn hefur 4 vinninga af 6. Á morgun er tefld einföld umferð en pörun liggur ekki fyrir að svo stöddu.
Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11.















