Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson tefldu í dag sjöundu umferð á alþjóðlegu móti á Korsíku, Porticcio Open. Eitt jafntefli kom í hús og var það Björn, gegn pólska stórmeistaranum Pakleza. Hinn þýski Koelle ætlar að reynast okkar mönnum erfiður en hann lagði Guðmund í dag og hafði áður lagt Björn að velli.

Guðmundur hafði svart gegn Þjóðverjanum sem tefldi á ógnarhraða. Sá þýski byrjaði ekki að hugsa fyrr en í 22. leik og þá þegar með líklegast yfirburðatafl. Guðmundur náði ekki að klóra sig út úr vandræðunum og varð að lúta í dúk.

Björn hafði svart gegn pólska stórmeistaranum Pakleza. Björn tefldi byrjunina skemmtilega og komst vel frá henni…svo vel að hann gat teflt til vinnings án áhættu. Sá pólski var meira og minna á önglinum en náði að hrista sig af og slapp með jafntefli í 90+ leikjum af þjáningu!
Íslensku titilhafaranir hafa nú báðir 4,5 vinning eftir 7 umferðir. Guðmundur hefur hvítt í 8. umferð gegn DELADERRIERE Apollo (2063) á meðan Björn hefur hvítt gegn WEBB Laurence (2230)
Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11.
















