Ágústmót barna hjá TR

    0
    4
    Emilía Klara, Helgi Fannar og Nói.
    Hvenær:
    15. ágúst, 2026 allan daginn
    2026-08-15T00:00:00+00:00
    2026-08-16T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    Ágústmót barna hjá TR @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Barnastarfið hefur undanfarin ár farið í sumafrí hjá TR að frátalinni sumarsyrpunni sem er nú haldin í þriðja sinn. Auk þess verður í ár júlí- og ágústmót haldið með hraðskákformi fyrir börn á grunnskólaaldri.

    Ágústmótið verður laugardaginn 15. ágúst í sal TR, Faxafeni 12 og hefst klukkan 10:30. Gera má ráð fyrir að mótinu verði lokið eigi síðar en 12:30.

    Tefldar eru sjö umferðir með tímamörkunum 5+3 Mótið er reiknað til hraðskákstiga.

    Aldursskipting: Opið öllum f. 2010 og yngri (voru að ljúka 10. bekk og yngri). Það verða tveir flokkar, 3. bekkur og yngri og 4. bekkur og eldri. Krakkar í 3. bekk og yngri með einhver skákstig (at- hrað eða kappskákstig), geta valið um að tefla í eldri flokki ef þau vilja.

    Þátttökugjald er 500 krónur fyrir alla og skráning fer fram í gegnum Abler. Ef einhver þarf að afskrá sig má hafa samband í taflfelag@taflfelag.is

    Skráningarform birt þegar nær dregur.

    - Auglýsing -