Stórmót Árbjæjarsafns og TR

    0
    5
    Frá Árbæjarsafni.
    Hvenær:
    30. ágúst, 2026 allan daginn
    2026-08-30T00:00:00+00:00
    2026-08-31T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Árbæjarsafn
    Kistuhylur
    110 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Magnús Kristinsson
    Stórmót Árbjæjarsafns og TR @ Árbæjarsafn | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 30. ágúst. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns.

    Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2).

    Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Aðeins þrír efstu geta unnið til verðlauna.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Þátttökugjald er greitt með því að greiða aðgangseyri inn á safnið samkvæmt gjaldskrá Árbæjarsafns. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortshafa Reykjavíkurborgar (greitt einusinni), öryrkja og börn 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er greitt við inngang safnsins. Teflt er í Kornhúsinu, en hér má sjá upplýsingar um keppnisstað.

    Mótið er eitt af fjölmörgum sem T.R heldur í samstarfi við Reykjavíkurborg, en Viðeyjarmótið og Árbæjarsafnsmótið eru haldin í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur.

    Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform.

    Skráningarform 

    Þegar skráðir keppendur

    Verðlaun skiptast eftir Hort kerfi. Oddastigaútreikningur í mótinu:

    1. Bucholz -1
    2. Bucholz
    3. Innbyrðis úrslit
    4. Sonneborn-Berger
    - Auglýsing -