Sumarsyrpa TR III

    0
    10
    Bikarsyrpa
    Hvenær:
    7. ágúst, 2026 @ 17:30 – 9. ágúst, 2026 @ 18:30
    2026-08-07T17:30:00+00:00
    2026-08-09T18:30:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    2000
    Tengiliður:
    Sumarsyrpa TR III @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Helgina (7-9.ágúst) fer fram þriðja mót í Sumarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er þriðja mótið af þremur sem haldið er þetta sumar. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12.

    Í mótunum eru tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

    Dagskrá mótsins:

    1. umferð: kl. 17.30 (fös)
    2. umferð: kl. 10.00 (lau)
    3. umferð: kl. 13.00 (lau)
    4. umferð: kl. 16.00 (lau)
    5. umferð: kl. 10.00 (sun)
    6. umferð: kl. 13.00 (sun)
    7. umferð: kl. 16.00 (sun)

    Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7. umferð hvers móts.

    - Auglýsing -