Sjö íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice.
Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.
Þriðja umferð fór fram í a-flokki í gær. Mæðginin töpuðu öll. Adam hefur 1 vinning en Lenka og Jósef hafa hálfan vinning.
Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theódór Eiríksson (1845).
Tvær umferðir voru tefldar í gær. Theódór hefur 1½ vinning en Jón Úlfur hefur 1 vinning.
Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539). Hann hefur 1 vinning eftir 3 umferðir.
Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757). Þeir hafa báðir 1 vinning.
- Auglýsing -



















