Skákmeistarinn og einn sterkasti hraðskákmaður landsins, Gauti Páll Jónsson (2103) situr þessa dagana að tafli í Poznan í Póllandi.

Í gær gerði hann jafntefli við Pólverjann Marek Laskok (2013). Gauti Páll er taplaus með svörtu en honum hefur hins vegar gengið afleitlega með hvítu.

Gauti hefur 2 vinninga og er í 26. sæti.

Alls taka 28 skákmenn þátt í flokki Gauta. Þar á meðal þrír stórmeistarar. Gauti er nr. 21 í stigaröð keppenda.

Segja má að mótið sé „gamli skólinn“. Níu umferðir á níu dögum. Umferðir hefjast kl. 10 á morgnanna. Ekki virðist vera boðið upp á beinar útsendingar.

- Auglýsing -