Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2395) gerði jafntefli við tékkneska stórmeistarann Stephan Zilka (2526) í níundu og síðustu umferð Sussex University Masters sem fram fór í gær.
Gummi hlaut 6 vinninga í 9 skákum og endaði í 3.-7. sæti. Hlaut þriðja sæti eftir oddastigaútreikning. Frammistaða hans samsvaraði 2391 skákstigi og hækkaði hann um 1 stig fyrir hana.
Lokastaða efstu manna

Alls tóku 62 skákmenn og þar af fimm stórmeistarar, þátt í flokki Gumma sem var fimmti stigahæsti keppandinn. Meðal keppenda voru stórmeistarnir Simon Williams (2455) og Oleg Korneev (2433). Mótið fór fram 21.-26. júlí.
- Auglýsing -

















