U2000 mótið

    0
    197
    Hvenær:
    30. september, 2026 – 25. október, 2026 allan daginn
    2026-09-30T00:00:00+00:00
    2026-10-26T00:00:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    U2000 mótið @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig, þ.e. allt frá 0 að 1999 skákstigum.

    Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu.

    Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra fyrir lok umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

    Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

    Fyrirkomulag:

    Teflt er tvisvar í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30 og Sunnudögum kl: 13:00, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12.

    Hlé 11. október vegna Íslandsmóts skákfélaga.

    Dagskrá:

    1. umferð: 30. september kl. 18.30
    2. umferð: 4. október kl. 13.00
    3. umferð: 7. október kl. 18.30
    4. umferð: 14. október kl.18.30
    5. umferð: 18. október kl. 13.00
    6. umferð: 21. október kl. 18.30
    7. umferð: 25. október kl. 13.00

    Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki.

    Verðlaun: 1. sæti kr. 40.000, 2. sæti kr. 25.000, 3. sæti kr. 15.000. Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi.

    Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

    Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 6.200, 17 ára og yngri kr. 3.300

    Fyrirspurnir skulu sendast á: taflfelag@taflfelag.is

    - Auglýsing -