Sverrir Örn, Omar, Jósef og Björn Freyr

Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sitja að tafli í a-flokki Brugse Meesters í Brussel í Belgíu. Björn Freyr Björnsson (2126) tekur þátt í flokki 50+ (þátttaka hans fór fyrst fram hjá ritstjóra)

Í gær fór fram 2. og 3. umferð í a-flokki. Omar og Jósef eru efstir Íslendinganna með 2 vinninga. Jósef gerði jafntefli við belgíska FIDE-meistarann Zmir Zouaghi (2370) í 3. umferð.

Alls taka þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir eru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 8.-14. ágúst – sjö umferðir á níu dögum

——————-

Í flokki 50 ára og eldri eru engir tvöfaldar dagar og tefldar sjö umferðir Björn er fjórði stigaröð keppenda.

Björn hefur fullt hús eftir 2 umferð. Hann tekur yfirsetu í þeirri þriðju sem fram fer í dag.

——————-

- Auglýsing -