Níu íslenskir keppendur taka þátt á alþjóðlega mótinu í Split í Króatíu. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2529) er í miklu stuði og lagði að velli í gær Íslandsmeistarann Hilmi Frey Heimisson (2338) í áttundu umferð. Vignir er einn efstur.

Vignir er efstur með 7½ vinning að loknum áttundu umferð. Hann hefur vinnings forskot á næstu menn. Oliver Aron Jóhannesson hefur 6 vinninga, Hilmir Freyr 5½ og Alexander Oliver og Óskar Víkingur 5 vinninga.

Níunda og næstsíðasta umferð hefst í dag kl. 15:10. Vignir teflir við makedónska stórmeistarann Nebojsa Nikevic (2316).
Vignir, Oliver, Hilmir og Alexander verða í beinni í dag.
Tengill á beina útsendingu níundu umferðar.
Alls taka þátt 162 skákmenn frá 28 löndum. Þar af eru fjórir stórmeistarar. Vignir er stigahæstur keppenda. Íslandsmeistarinn er 15. í stigaröð keppenda og Oliver nr. 18.
Split Open fer fram í Króatíu dagana 6.-14. ágúst. 10 umferðir á 9 dögum (einn frídagur).














