Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026.
Mótsupplýsingar:
Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12).
Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10).
| Umferð / Deild | Dagur | Dagsetning | Tími | Staður |
|---|---|---|---|---|
| 1. umferð – Úrvalsdeild | Fimmtudagur | 8. október | 19:00 | TR |
| Aðrar umferðir (úrvalsdeild + allar aðrar deildir) | Föstudagur | 9. október | 19:00 | MH |
| Laugardagur | 10. október | 11:00 og 17:30 | MH | |
| Sunnudagur | 11. október | 11:00 | MH |
Tímamörk:
- Úrvalsdeild: 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leiki, auk 15 mínútna eftir 40 leiki, með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
- Aðrar deildir: 90 mínútur á skákina með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
Þátttökugjöld 2026-27
-
Úrvalsdeild: 150.000 kr.
-
1. deild: 100.000 kr.
-
2. deild: 50.000 kr.
-
3. deild: 37.500 kr.
-
4. deild: 25.000 kr.
Ferðakostnaður:
Skáksamband Íslands endurgreiðir ferðakostnað innanlands fyrir keppendur sem koma langt að. Allt að 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar, en 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og 1. deild, gegn framvísun kvittana. Enginn ferðakostnaður er endurgreiddur fyrir aðrar deildir.
Skráning:
Skráningarfrestur:
- Úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild: 15. september 2026
- deild: 1. október 2026
Félagaskipti:
Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 18. september 2026 kl. 23:59. Skákmenn án félags og alþjóðlegra kappskákstiga eru undanþegnir þessum fresti.
Síðari hluti mótsins:
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 er áætlaður dagana 5.–8. mars 2027 (endanleg dagsetning og staðsetning verða staðfest síðar).
MÓTSREGLUR
- Mæta þarf innan 30 mínútna eftir að umferð hefst. Annars er dæmt tap.
- Öll notkun rafeindatækja (símar, snjallúr, heyrnartól) er stranglega bönnuð í skáksal.
- Liðstjórum er óheimilt að hafa afskipti af einstökum skákum á meðan teflt er (samkvæmt FIDE-reglum).
Nánari upplýsingar
- Auglýsing -
















