Eins og áður hefur komið fram verða 100 ár liðin frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja 29. ágúst nk.
Af þessu tilefni er gefið út sérstakt afmælisblað 8 bls. í stóru broti sem fór í dag í aldreifingu í Eyjum.
Afmælisnefnd TV og ritnefnd skipa Arnar Sigurmundsson, ábm., Karl Gauti Hjaltason og Hallgrímur Steinsson, form. TV. Eyjasýn ehf. er útgefandi fh. TV og útburð þess annast Eyjadreifing.
Afmælisblaðið verður aðgengilegt í opinni vefútgáfu á eyjafrettir.is til loka sept. nk.
Um helgina verða haldin tvö 100 ára afmælismót TV á opna svæðinu í Þekkingarsetrinu að Ægisgötu 2 , 2. hæð
Atskákmót laugardaginn 29. ágúst nk. kl. 12.00-18.00 – tímamörk 15 mín. + 5 sek á leik.
Hraðskákmót sunnudaginn 30. ágúst kl. 13.00-16.00 – tímamörk 5 mín. + 5 sek. á leik.
Þetta eru heldur rýmri tímamörk en almenn gerist í atskákum og hraðskákum á skákmótum.
Keppendur á mótunum eru úr Eyjum og víðsvegar af landinu. Hægt er að fylgjast með mótunum á keppnisstað báða daga. Engin mótsgjöld og öllum heimil þátttaka.
Hægt að skrá sig til keppni á skak.is eða í sima 822-0351.
Frétt frá TV.
















