Startmótið góða sem markar upphaf nýrrar skáktíðar hjá okkur í SA, fór fram á sunnudaginn. Tíu keppendur mættu til leiks. Nökkvi Már tók snemma forystuna, vann fyrstu sex skákir sínar, en Markús skaust fram fyrir hann með sigri í innbyrðis viðureign. Eins og lokastaðan ber með sér missti sigurvegarinn aðeins hálfan vinning niður.
Lokastaðan
| 1 | 1 | Oskarsson, Markus Orri | ISL | 2175 | 8,5 | 33 | |
| 2 | 3 | IM | Karason, Askell O | ISL | 2141 | 7 | 26,5 |
| 3 | 7 | Valsson, Nokkvi Mar | ISL | 1878 | 7 | 22,5 | |
| 4 | 5 | Olafsson, Smari | ISL | 1918 | 5,5 | 16,5 | |
| 5 | 8 | Kramarenko, Viacheslav | ISL | 1654 | 4,5 | 13,75 | |
| 6 | 10 | Adalsteinsson, Jon Thor | ISL | 1681 | 4 | 11 | |
| 7 | 9 | Magnusson, Jon | ISL | 1610 | 4 | 8,5 | |
| 8 | 2 | Olafsson, Eythor Pall | ISL | 0 | 3,5 | 7,25 | |
| 9 | 4 | Wielgus, Dominik | POL | 0 | 1 | 0 | |
| 10 | 6 | Ingason, Gretar Arni | ISL | 0 | 0 | 0 |
Næsti stórviðburður verður eftir viku; aðalfundur félagsins kl. 13.00 nk. sunnudag og svo hraðskákmót á eftir.
Dagskrá SA er sem hér segir
Fimmtudaginn 3. september kl. 16.30 Barnamót og foreldraspjall.
Sunnudaginn 6. september kl. 13:00 Aðalfundur Skákfélags Akureyrar. Hraðskákmót að loknum fundi.
Fimmtudaginn 10. september kl. 18.30 Haustmót, undanrásir.
Föstudaginn 11. september kl. 18.30 Haustmót, undanrásir.
Laugardaginn 12. september kl. 13:00 Haustmót, undanrásir.
Skákþing Norðlendinga í Skagafirði dagana 18-20. september.
Fimmtudaginn 24. september kl. 18:30 Haustmót, fyrsta umferð í úrslitum.
Barna- og unglingaæfingar:
Almennur flokkur byrjar 7. september kl. 16:45
Framhaldsflokkur byrjar 8. september kl. 14:30
Æfingadagskráin og mótahald fyrir börn til umræðu þann 3. september og svo eftir þörf og atvikum nú í septemberbyrjun.



















