Skákmeistaramót Mosfellsbæjar 2026 fór fram sunnudaginn 30. ágúst í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima. Alls tóku 16 skákmenn þátt í mótinu og var teflt í Þverholti 2 í Mosfellsbæ.

Tefldar voru sjö umferðir með tímamörkunum 4+3 og var mótið reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Það var hart barist um efstu sætin og spennan hélst allt til loka. Eiríkur K. Björnsson (1946) stóð að lokum uppi sem sigurvegari með 6 vinninga af 7 mögulegum og tryggði sér þar með titilinn Skákmeistari Mosfellsbæjar 2026.

Skammt undan komu Anh Hai Tran (1866) og Egill Steinar Ágústsson (1841) sem báðir hlutu 5½ vinning. Anh Hai hafði betur eftir oddastigareikning og hafnaði því í öðru sæti en Egill Steinar tók þriðja sætið.

Verðlaunin í ár voru með skemmtilegu Mosfellsbæjarívafi. Eiríkur fékk að launum innrammaða ljósmynd af Úlfarsfelli, Anh Hai ljósmynd af Reykjafelli og Egill Steinar ljósmynd af Helgafelli. Þá fengu þrír efstu keppendurnir einnig glæsilega vinninga og gjafabréf frá Apótekaranum.

Mosfellsbakarí sá keppendum fyrir veitingum meðan á mótinu stóð og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.

Þá viljum við sérstaklega þakka Tómasi Tandra innilega fyrir frábæra myndatöku á mótinu.

Skákfélag Mosfellsbæjar þakkar öllum keppendum kærlega fyrir komuna og fyrir skemmtilegt mót. Það var virkilega gaman að sjá skákina fá sinn sess á Í túninu heima og við hlökkum til næsta móts.

Til hamingju, Eiríkur K. Björnsson – Skákmeistari Mosfellsbæjar 2026! 🏆

Úrslit á chess results

- Auglýsing -